Ráðherra með „fráleita hótun“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. júlí 2026 12:57 Ásdís gagnrýnir Ingu. Samsett Bæjarstjóri Kópavogs segir barna- og menntamálaráðherra fara með fráleita hótun í garð sveitarfélaga. Stjórnvöld gangi á bak orða sinna.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, birti færslu á Facebook þar sem hún gagnrýnir orð Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, um nýja reglugerð er varðar þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Vísar hún þar í viðtal við Ingu um málið á Vísi. Inga ræddi þar nýja reglugerð sem hefur verið gagnrýnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem telja að með henni sé ríkið að skilgreina sig frá tilteknum hópi barna. „Það voru þrír milljarðar sem við erum að fara að rétta sveitarfélögunum að eigin frumkvæði. Ég hef líka sagt við þau, ef þau eru að tala um það hreinlega að þau standi verr eftir að þau fá þrjá milljarða bara í svona góðhjartaða gjöf frá okkur í ríkisstjórninni, þá er okkur náttúrulega í lófa lagið að snúa þessu við og hafa þetta nákvæmlega á þeim stað sem það var,“ sagði Inga í viðtalinu og bætti við að gagnrýni sveitarfélaganna væri byggð á gagnrýni. Ásdís gaf lítið fyrir orð Ingu um að snúa öllu við. „Ráðherra kemur fram með fráleita hótun í garð sveitarfélaga í stað þess að svara málefnalega hvers vegna stjórnvöld ætla að skilja þessi börn eftir,“ skrifar Ásdís. „Staðreyndin er sú að stjórnvöld eru að ganga á bak orða sinna og brjóta samkomulag sem var gert við sveitarfélögin í mars 2025. Þau lofuðu að taka yfir ábyrgð og fjármögnun á þjónustu við börn með fjölþættan vanda og sérfræðiteymi höfðu þá skilgreint hvaða börn féllu þar undir.“ Samband íslenskra sveitarfélaga er meðal þeirra sem hafa gagnrýnt nýju reglugerðina og segja að með henni sé ríkið að skilgreina sig frá tilteknum hópi barna. „Í fréttum lýstu ráðherrar því yfir að um tímamót væri að ræða því loksins væri ríkið að grípa þessi börn. Nú rúmlega fimmtán mánuðum síðar hafa stjórnvöld ákveðið einhliða að þrengja skilgreiningu á því hvaða börn falla þarna undir og skilja um það bil helming barna eftir,“ skrifar Ásdís. Hún segist vilja vita hvort allir oddvita ríkisstjórnarflokkanna hugsi eins. „Á að brjóta á samkomulagi með þessum hætti og samhliða beita hótunum ef sveitarfélög voga sér að stíga fram og benda á þá stöðu sem upp er komin?“ spyr Ásdís.
Börn og uppeldi Kópavogur Sveitarstjórnarmál Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira