Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Jakob Bjarnar skrifar 30. júní 2026 13:15 Guðlaugur Þór er klár í slaginn en Þorgerður Katrín hefur enn ekki gefið grænt ljóst. vísir/einar/vilhelm Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hefur boðið utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Miðað er við að kappræðurnar fari fram 14. ágúst.
Eins og þjóðinni ætti að vera ljóst verður þá kosið um hvort hefja skuli að nýju aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. „Paradigm hefur staðið fyrir viðburðum og umræðum um samfélagsmál og markmið okkar með þessum viðburði er að skapa vandaðan, upplýsandi og málefnalegan vettvang fyrir almenning í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Umræðurnar verða í föstu formi, með skýrum tímamörkum og jafnvægi milli sjónarmiða. Dr. Ásgeir Theodór Jóhannesson mun stýra umræðunum á hlutlausan hátt eftir því formi,“ segir Gunnlaugur Jónsson. Gunnlaugur er áfram um að kappræður fari fram milli þeirra Guðlaugs Þórs og Þorgerðar Katrinar um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Stefnt er á 14. ágúst.aðsend Paradigm er félag sem stofnað hefur verið um umræður um samfélagsmál íslenskra og erlendra ræðumanna og hefur staðið fyrir nokkrum slíkum viðburðum. Stefnt er að því að þau hvort um sig taki með sér einn gest, og þá gjarnan sérfræðing sem talar þá á ensku, en það er opið af hálfu Gunnlaugs. Guðlaugur Þór, sem hefur fyrir sitt leyti þekkst boðið, mun taka með sér Daniel Hannan. Gunnlaugur hefur átt í samtölum við Heiðu Kristínu Helgadóttur, ráðgjafa Þorgerðar Katrínar, en endanleg niðurstaða er ekki komin þar á bæ vegna anna. „Ef hún kemst ekki bjóðum við henni að tilnefna þann sem hún treystir til að flytja málið vel,“ segir Gunnlaugur. Paradigm hefur tekið Silfurberg í Hörpu frá fyrir viðburðinn og er miðað við föstudaginn 14. ágúst. Ef annað þeirra Gunnlaugs eða Þorgerðar kemst ekki þann dag er laugardagurinn 15. ágúst eða sunnudagurinn 16. ágúst hafður til vara. Fyrirhugað er að taka viðburðinn upp og birta hann á netinu að honum loknum. Jafnframt verður hægt að kaupa miða fyrir þau sem vilja fylgjast með umræðunum í Hörpu.
Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Sjá meira