Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 9. júní 2026 18:00 Kolbeinn Tumi Daðason les kvöldfréttir í kvöld. vísir Tjón vegna netbrota hljóp á sex hundruð milljónum króna á síðasta ári og fjöldi brotanna fjórfaldaðist milli ára. Hvað veldur slíkum afköstum hjá netþrjótum? Þeir nota gervigreindarforrit til að auðvelda sér verkið.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir útlendinga var samþykkt á Alþingi síðdegis en forverar núverandi ráðherra í starfi reyndu árum saman að koma slíku úrræði í gegn án árangurs. Málið er umdeilt, flókið og viðkvæmt, enda snertir það meðferð á fólki og börnum sem eru í viðkvæmri stöðu. Við ræðum við dómsmálaráðherra í setti í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar. Við ræðum við konu sem hefur búið við Hringbraut í fjörutíu og fjögur ár sem hefur orðið vitni að fleiri umferðarslysum en hún kærir sig um. Hún segir að hin þunga umferðargata sé rússnesk rúlletta fyrir gangandi vegfarendur. Við ræðum við fjármálaráðherra sem hyggst hvergi hvika frá boðuðum bankaskatti þrátt fyrir harða gagnrýni forsvarsmanna fjármálafyrirtækja. Við verðum í þráðbeinni frá Verslunarminjasafninu á Hvammstanga þar sem Kristján Már Unnarsson fréttamaður okkar ætlar að segja okkur – eins og honum einum er lagið – frá einni merkustu þjóðvegasjoppu landsins sem loks fær sinn sess í menningarsögu þjóðar. Þá hittum við káta krakka sem eru nemendur Landakotsskóla en þeir skelltu sér í skrúðgöngu að Ráðhúsi Reykjavíkur til fundar við glænýjan borgarstjóra, minna má það ekki vera. Í sportinu ætlar Smári Jökull að vera í beinni útsendingu frá Laugardalsvelli þar sem landsliðsstelpurnar okkar munu mæta heimsmeisturum Spánar. Við tökum púlsinn á stemningunni hjá knattspyrnuaðdáendum og ræðum við Hermann Hreiðarsson sem er faðir Ídu Marínar landsliðskonu. Það eru ekki aðeins stelpurnar okkar sem eiga stórleik í vændum því strákarnir okkar mæta ríkjandi heimsmeisturum Argentínu í Bandaríkjunum í nótt. Í Íslandi í dag fáum við að fræðast um allt sem tengist sjúkdómnum offitu. Sérfræðingur ætlar að leiðrétta lífsseigar mýtur um offitu. Þetta og meira til í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis á slaginu hálf sjö. Klippa: Kvöldfréttir 9. júní 2026
Kvöldfréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira