Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. júní 2026 11:18 Bæjarráð Fjarðabyggðar. Efri röð frá vinstri: Hrafn Bjarnason (M), Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs (D), Stefán Þór Eysteinsson (S). Neðri röð frá vinstr: Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri og Þuríður Lillý Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar (B). Fjarðabyggð Jóna Árný Þórðardóttir hefur verið endurráðin bæjarstjóri Fjarðabyggðar fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Ráðning hennar var staðfest af öllum bæjarfulltrúum 3. júní síðastliðinn og ráðningarsamningur undirritaður í gær.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá sveitarfélaginu tók Jóna Árný við starfi bæjarstjóra Fjarðabyggðar árið 2023. Hún kemur frá Norðfirði og hefur víðtæka stjórnunarreynslu og sérþekkingu á sviði rekstrar, fjármála og þróunar. Jóna Árný er löggiltur endurskoðandi og starfaði sem ráðgjafi hjá KPMG árin 2005–2008. Að því loknu starfaði hún sem fjármálastjóri Fjarðabyggðar í tvö ár og síðar í innri endurskoðun hjá Alcoa Fjarðaáli í önnur tvö ár. Hún starfaði síðan sjálfstætt þar til hún tók við starfi framkvæmdastjóra Austurbrúar vorið 2014. „Ég þakka það traust sem mér er sýnt og held auðmjúk áfram störfum mínum sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Ég hlakka til að vinna áfram með öflugri bæjarstjórn og framúrskarandi starfsfólki sveitarfélagsins að þeim verkefnum og tækifærum sem fram undan eru. Framtíðin í Fjarðabyggð er björt, krafturinn í samfélaginu okkar einstakur og ég er þakklát og stolt af því að fá að sinna áfram þessu veigamikla hlutverki fyrir samfélagið okkar,“ er haft eftir Jónu Árnýju. „Jóna Árný hefur staðið sig vel í starfi síðustu ár og komið sér vel inn í málefni okkar víðfeðma sveitarfélags. Það er mikilvægt að tryggja stöðugleika og góðan starfsanda bæði fyrir sveitarfélagið, starfsfólk þess og kjörna fulltrúa og Jóna Árný gerir það með sóma,“ segir Þuríður Lillý Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar. Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs, tók undir með Jónu Árnýju og Þuríði Lillý og sagði að auki: „Ég er mjög ánægður með endurráðningu Jónu Árnýjar sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Hún hefur á undanförnum árum sýnt styrka forystu, fagmennsku og yfirgripsmikla þekkingu á rekstri sveitarfélagsins. Við höfum átt gott og traust samstarf og ég hlakka til að halda því áfram á nýju kjörtímabili. Fram undan eru mikilvæg verkefni þar sem við ætlum áfram að styrkja rekstur sveitarfélagsins, byggja upp innviði og skapa enn betra samfélag fyrir íbúa Fjarðabyggðar. “
Fjarðabyggð Sveitarstjórnarmál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira