Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Jón Þór Stefánsson skrifar 6. júní 2026 14:34 Mæðginin höfðu verið í göngutúr meðfram sjónum og héldu svo yfir gangbrautina yfir Sæbraut við Kringlumýrarbraut. Vísir/Vilhelm Leigubílstjóri var á dögunum dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að valda líkamsmeiðingum af gáleysi og umferðarlagabrot með því að aka yfir gangbraut á rauðu ljósi og á konu, sem var gangandi vegfarandi.
Atvikið átti sér stað um septembermorgun árið 2024 á gatnamótum Sæbrautar við Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Konan, sem hlaut brot í stóru lærhnútu vegna árekstursins, var að fara yfir gangbrautina ásamt syni sínum þegar atvikið átti sér stað. Mæðginin voru ferðamenn á Íslandi og höfðu verið í göngutúr að skoða strandlengjuna meðfram Sæbraut. Eftir áreksturinn þurfti hún að dvelja á sjúkrahúsi í eina viku, og svo þurft að fara í endurhæfingu í heimalandi sínu. Maðurinn sem ók á konuna var í leigubílstjóri, og var í vinnunni.Vísir/Anton Brink Leigubílstjórinn neitaði sök. Hann sagðist hafa verið vel hvíldur og með næga orku umræddan morgun, og verið að keyra rólega. „Síðan birtist þessi kona og sonur fyrir framan mig og þá sérstaklega konan. Ég sá hana seint, það var grænt hjá henni, sonurinn hafði þegar farið yfir gatnamótin. Eftir það þá reyndi ég að hemla og beygja frá en ég náði ekki að gera það og lenti á konunni,“ er haft eftir honum í dómnum, en þar sagði hann þó líka að grænt ljós hafi verið hjá honum, en rautt hjá konunni. Þess má geta að svo virðist sem tungumálaörðugleikar hafi spilað inn í framburð mannsins. „Þetta var bara furðulegt“ Fyrir dómi bar kona vitni sem sagðist hafa verið í næsta bíl fyrir aftan leigubílinn. Hún lýsti atvikinu með þessum hætti: „Ég sé að það er komið rautt ljós á okkur þannig að ég byrja að hægja á mér. Bíllinn fyrir framan mig, finnst svona eins og hann sé að byrja að hægja á sér en ákveði allt í einu að halda áfram, gefur í og mér fannst svo sérstakt, einmitt, ég kalla upp yfir mig í bílnum hvað í andskotanum hann sé að gera því það er bara fólk beint fyrir framan hann en hann ákveður samt að halda áfram og keyrir á þarna, fer á eldri konu. Maðurinn sem var með henni nær að hörfa frá en konan fer í sem sagt í hægra framhorn bílsins og fellur í jörðina. Og ég náttúrulega stoppa bílinn um leið, hoppa út og athuga hvort það sé allt í góðu og hringi á Neyðarlínuna.“ Konan var spurð hvort það væri rétt skilið að leigubílstjórinn hafi verið byrjaður að hægja á sér, og svo gefið í. „Mér finnst eins og hann væri byrjaður að hægja á sér, búinn að átta sig á því að það væri þarna komið rautt, en svo ákveður hann að auka hraðann aftur og fer á þau. Þetta var bara furðulegt.“ Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Framburður vitnisins lagður til grundvallar Framburður mæðginanna og leigubílstjórans stangaðist á um hvernig litir voru á ljósunum. Að mati dómsins veitti framburður vitnisins framburði mæðginanna umtalsverða stoð og var hann lagður til grundvallar. Taldist því sannað að leigubílstjórinn hafi farið yfir á rauðu ljósi. Líkt og áður segir hlaut leigubílstjórinn skilorðsbundinn dóm. Nánar tiltekið var hann dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Dómsmál Leigubílar Reykjavík Ferðaþjónusta Umferðaröryggi Samgönguslys Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira