„Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júní 2026 17:41 Páll segir umfjöllunin hafa leitt til „illskeyttari og orðljótari persónuárása í athugasemdum“ en íbúar Vestmannaeyja séu almennt vanir. Vísir/Ívar Fannar og aðsend Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja og fyrrverandi þingmaður, segir fyrirtækið Eflu hafa staðfest í svari til bæjarins að Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri hafi ekki nokkurn tímann haft afskipti af ákvörðun um ráðningu eða starfslok fyrrverandi starfsmanns Eflu.
Linda Rós Sigurðardóttir, tækniteiknari í Vestmannaeyjum, sagði í aðsendri grein á Vísi fyrir helgi að verkefni hjá Eflu frá bænum hefðu dregist saman og hún svo misst vinnuna í kjölfar þess. Hún hafi mátt þola þöggun og ógnarstjórnun vegna pólitískra skoðana sinna. Hún taldi Írisi hafa haft eitthvað með það að gera og að það tengdist því að Linda hefði starfað fyrir Miðflokkinn í Vestmannaeyjum. Hún hafi áður starfað hjá Vestmannaeyjabæ en verið sagt upp þar og það hefði elt hana á annan vinnustað, Eflu, að vera „ekki réttu megin í pólitíkinni“. Páll fer yfir fullyrðingar Lindu í færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir grein Lindu og svo frétt sem var skrifuð um hana hafa leitt til „illskeyttari og orðljótari persónuárása í athugasemdum“ en þau séu almennt vön í Eyjum. Sérstaklega vegna þess að staðhæfingar Lindu, sem hrundu málinu af stað, séu rangar. Sagði sjálf upp starfi sínu Henni hafi, til dæmis, ekki verið sagt upp af Vestmannaeyjabæ, heldur hafi hún sjálf sagt upp. „Raunar hefur engum starfsmanni verið sagt upp störfum í Ráðhúsinu síðustu 8 ár,“ segir hann í færslu sinni. Linda hafi sömuleiðis gefið til kynna í grein sinni að Íris hafi með einhverjum hætti hlutast til símleiðis við yfirmann hennar hjá Eflu um að henni yrði sagt upp. „Þetta er rangt. Aðspurður sagði framkvæmdastjóri Eflu þetta í svari til bæjarins: „Ég get staðfest að bæjarstjóri hafði ekki afskipti af ákvörðun um ráðningu eða starfslok nokkurs starfsmanns EFLU,“ segir Páll í færslunni. Íris Róbertsdóttir hefur gegnt embætti bæjarstjóra Vestmannaeyja síðustu átta ár.Vísir/Vilhelm Fleiri verkefni en ekki færri Hvað varðar færri verkefni frá bænum til Eflu á samningstíma hennar segir Páll sömuleiðis þar rangt farið með mál og að þvert á móti hafi verkefnum fjölgað stórlega á þeim tíma sem um ræðir. „Þessar röngu staðhæfingar urðu síðan grunnurinn að fáheyrðri samfélagsmiðlaárás nokkurra einstaklinga að starfsheiðri og æru bæjarstjórans í Vestmannaeyjum. Orðalepparnir og ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar – en ættu að vera okkur öllum umhugsunarefni um tilgang og eðli samfélagsmiðla. Ekki einu sinni kjörnir fulltrúar – nú eða ráðnir bæjarstjórar – ættu að þurfa að sitja undir persónulegum svívirðingum af þessu tagi,“ segir Páll að lokum. Engar formlegar kvartanir Í frétt sem skrifuð var á Vísi fyrir helgi kom jafnframt fram að í svari til Eyjafrétta hefði bærinn sagt að engar formlegar kvartanir eða ábendingar hefðu borist á undanförnum árum sem varði starfsumhverfi eða samskipti stjórnenda og starfsfólks. „Hjá Vestmannaeyjabæ starfa rúmlega 500 starfsmenn við 18 stofnanir. Ef fyrirspurn Eyjafrétta á eingöngu við Ráðhús að þá hafa engar formlegar kvartanir eða ábendingar borist síðustu ár,“ sagði svarinu. Reglulegar mannauðskannanir væru gerðar og niðurstöður sýndu þvert á móti aukna starfsánægju.
Vestmannaeyjar Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Vinnumarkaður Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Sjá meira