Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Boði Logason skrifar 2. júní 2026 13:48 Kappræðurnar voru í beinni útsendingu á Sýn og Vísi miðvikudagskvöldið fyrir kosningarnar. Vilhelm Mikill áhugi var á umfjöllun fréttastofu Sýnar um nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar samkvæmt rafrænum ljósvakamælingum Gallup. Kappræðurnar á miðvikudagskvöldi fyrir kosningar náði til tæplega 73 þúsund manna hér á landi. Fréttastofa Sýnar blés til kappræðna milli oddvitanna í Reykjavík miðvikudaginn 13. maí sem Elísabet Inga Sigurðardóttir og Sunna Sæmundsdóttir stýrðu. Kappræðurnar voru með breyttu sniði þar sem oddvitarnir tókust á um stærstu málefnin, voru píndir til að svara spurningum já eða nei auk þess sem beina útsendingin var brotin upp með innslögum þar sem oddvitarnir sýndu á sér mannlega hlið. Samkvæmt PPM-mælingum Gallup horfðu að jafnaði 14 prósent landsmanna 12 ára og eldri á kappræðurnar eða rúmlega 37 þúsund manns. Þegar litið er til þess hóps sem sá einhver brot úr útsendingunni taldi hann rúmlega 27 prósent þjóðarinnar eða tæplega 73 þúsund manns. Alla kosningaumfjöllun Sýnar má nálgast hér. Á kjördag blés Sýn til Góðs kosningakvölds í beinni útsendingu klukkan 20 og svo kosningavöku klukkan 22. Alls horfðu 22,8 prósent landsmanna á Gott kosningakvöld eða um 61.000 þúsund manns. Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson stýrðu þættinum með aðstoð Sveppa krull þar sem einblínt var á skemmtiþátt með innslögum, gestum í sal og lifandi tónlist. Kosningavaka fréttastofu Sýnar hófst svo klukkan 22 þar sem Telma Tómasson fréttaþulur rýndi í tölur með Gunnari Sigurðarsyni stjórnmála- og stjórnsýslufræðingi auk þess sem fréttamenn Sýnar voru í beinum útsendingum með viðbrögð við nýjustu tölum og mestu stemmningunni. Alls horfðu 23,1 prósent landsmanna 12 ára og eldri á kosningavökuna sem stóð til tæplega þrjú um nóttina. Það svarar til 62.000 þúsund manns. Fólkið á bakvið tjöldin, starfsmenn Vísis og Sýnar stóðu vaktina langt fram á kosninganótt.Viktor Freyr Um PPM-mælingar Frá árinu 2008 hefur Gallup mælt sjónvarpsáhorf og útvarpshlustun með rafrænum hætti. Í samstarfi við alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið Kantar Media notar Gallup mæliaðferð sem kallast PPM (Portable People Meter) til að mæla á hvað fólk horfir og hvað það hlustar á. PPM mælitækin greina hljóðmerki sem Gallup kemur fyrir í útsendingum mældra sjónvarps- og útvarpsstöðva. Merkið er falið í útsendingunni og mannseyrað nemur það ekki. Í kjölfar ítarlegrar rannsóknar á ljósvakanotkun byggir Gallup upp og viðheldur hópi þátttakenda sem endurspeglar almenning í landinu m.t.t. ljósvakanotkunar. Í Fjölmiðlahópnum eru um nokkur hundruð manns á aldrinum 12-80 ára sem bera PPM-mælitækið á sér yfir daginn. PPM tækið skráir hvenær horft er eða hlustað á hverja stöð og á hverri nóttu eru gögnin send til Gallup. Vísir er í eigu Sýnar. Sýn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjölmiðlar Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira
Fréttastofa Sýnar blés til kappræðna milli oddvitanna í Reykjavík miðvikudaginn 13. maí sem Elísabet Inga Sigurðardóttir og Sunna Sæmundsdóttir stýrðu. Kappræðurnar voru með breyttu sniði þar sem oddvitarnir tókust á um stærstu málefnin, voru píndir til að svara spurningum já eða nei auk þess sem beina útsendingin var brotin upp með innslögum þar sem oddvitarnir sýndu á sér mannlega hlið. Samkvæmt PPM-mælingum Gallup horfðu að jafnaði 14 prósent landsmanna 12 ára og eldri á kappræðurnar eða rúmlega 37 þúsund manns. Þegar litið er til þess hóps sem sá einhver brot úr útsendingunni taldi hann rúmlega 27 prósent þjóðarinnar eða tæplega 73 þúsund manns. Alla kosningaumfjöllun Sýnar má nálgast hér. Á kjördag blés Sýn til Góðs kosningakvölds í beinni útsendingu klukkan 20 og svo kosningavöku klukkan 22. Alls horfðu 22,8 prósent landsmanna á Gott kosningakvöld eða um 61.000 þúsund manns. Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson stýrðu þættinum með aðstoð Sveppa krull þar sem einblínt var á skemmtiþátt með innslögum, gestum í sal og lifandi tónlist. Kosningavaka fréttastofu Sýnar hófst svo klukkan 22 þar sem Telma Tómasson fréttaþulur rýndi í tölur með Gunnari Sigurðarsyni stjórnmála- og stjórnsýslufræðingi auk þess sem fréttamenn Sýnar voru í beinum útsendingum með viðbrögð við nýjustu tölum og mestu stemmningunni. Alls horfðu 23,1 prósent landsmanna 12 ára og eldri á kosningavökuna sem stóð til tæplega þrjú um nóttina. Það svarar til 62.000 þúsund manns. Fólkið á bakvið tjöldin, starfsmenn Vísis og Sýnar stóðu vaktina langt fram á kosninganótt.Viktor Freyr Um PPM-mælingar Frá árinu 2008 hefur Gallup mælt sjónvarpsáhorf og útvarpshlustun með rafrænum hætti. Í samstarfi við alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið Kantar Media notar Gallup mæliaðferð sem kallast PPM (Portable People Meter) til að mæla á hvað fólk horfir og hvað það hlustar á. PPM mælitækin greina hljóðmerki sem Gallup kemur fyrir í útsendingum mældra sjónvarps- og útvarpsstöðva. Merkið er falið í útsendingunni og mannseyrað nemur það ekki. Í kjölfar ítarlegrar rannsóknar á ljósvakanotkun byggir Gallup upp og viðheldur hópi þátttakenda sem endurspeglar almenning í landinu m.t.t. ljósvakanotkunar. Í Fjölmiðlahópnum eru um nokkur hundruð manns á aldrinum 12-80 ára sem bera PPM-mælitækið á sér yfir daginn. PPM tækið skráir hvenær horft er eða hlustað á hverja stöð og á hverri nóttu eru gögnin send til Gallup. Vísir er í eigu Sýnar.
Um PPM-mælingar Frá árinu 2008 hefur Gallup mælt sjónvarpsáhorf og útvarpshlustun með rafrænum hætti. Í samstarfi við alþjóðlega rannsóknarfyrirtækið Kantar Media notar Gallup mæliaðferð sem kallast PPM (Portable People Meter) til að mæla á hvað fólk horfir og hvað það hlustar á. PPM mælitækin greina hljóðmerki sem Gallup kemur fyrir í útsendingum mældra sjónvarps- og útvarpsstöðva. Merkið er falið í útsendingunni og mannseyrað nemur það ekki. Í kjölfar ítarlegrar rannsóknar á ljósvakanotkun byggir Gallup upp og viðheldur hópi þátttakenda sem endurspeglar almenning í landinu m.t.t. ljósvakanotkunar. Í Fjölmiðlahópnum eru um nokkur hundruð manns á aldrinum 12-80 ára sem bera PPM-mælitækið á sér yfir daginn. PPM tækið skráir hvenær horft er eða hlustað á hverja stöð og á hverri nóttu eru gögnin send til Gallup.
Sýn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjölmiðlar Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira