„Ég er rígmontinn af þeim” Andri Broddason skrifar 29. maí 2026 22:51 Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, er sáttur með frammistöðuna í kvöld. Vísir/Diego Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var afar stoltur af sínum leikmönnum eftir 1-0 sigur á Val á Hlíðarenda í kvöld
Þróttur lék manni færri í rúman hálftíma eftir að Alexia Marin Czerwien fékk rautt spjald snemma í síðari hálfleik en tókst engu að síður að halda út og sækja öll stigin þrjú. „Ég hef oft verið ánægður með hópinn og stelpurnar en núna er ég alveg ótrúlega montinn,“ sagði Jóhann Kristinn eftir leik. Jóhann var sérstaklega ánægður með karakterinn sem leikmenn Þróttar sýndu eftir að liðið varð manni færra. „Þær sýndu vilja, baráttu, samstöðu og ótrúlega seiglu til þess að ná í þennan sigur á móti mjög flottu Valsliði sem bankaði alveg á dyrnar. Ég er bara ríkmontinn af þeim,“ sagði Jóhann. Jóhann vildi hins vegar ekki tjá sig mikið um rauða spjaldið sem Alexia fékk á 58. mínútu þegar hann var spurður út í atvikið. „Við erum að taka þetta viðtal allt of stutt eftir leik og ég ætla ekki að segja það sem mér finnst um þetta,“ sagði hann og lét þar við sitja. Eina mark leiksins skoraði Unnur Dóra Bergsdóttir á 30. mínútu eftir glæsilega sendingu frá Björgu Gunnlaugsdóttur. Jóhann var hæstánægður með sóknina sem leiddi til marksins. „Mér fannst það geggjað. Þetta var frábær bolti frá Björgu og Unnur í góðu hlaupi. Unnur er refur, hún er ótrúlega seig fyrir framan markið og þetta var bara frábært mark,“ sagði Jóhann Kristinn að lokum.
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Sjá meira