„Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ Agnar Már Másson skrifar 28. maí 2026 20:12 Hilmar Gunnarsson, nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Vísir/Sigurjón Oddvitar nýs bæjarstjórnarmeirihluta í Mosfellsbæ boða hóflegar álögur á íbúa og skilvirka þjónustu og lofa að gera gott fyrir Mosfellinga. Þeir segja viðræður hafa gengið vel.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar var kynntur í bæjarfélaginu í dag. „Okkur líður mjög vel. Þetta hefur gengið afskaplega vel frá byrjun,“ segir Hilmar Gunnarsson, nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar, í samtali við Tómas Arnar fréttamann í kvöldfréttum Sýnar. Hilmar er fyrrverandi ritstjóri bæjarblaðsins Mosfellings og nú oddviti Sjálfstæðisflokksins. Hann var til tals í fréttatímanum ásamt Gylfa Þór Þorsteinssyni, oddvita Viðreisnar, sem verður nú forseti bæjarstjórnar. Hann tók undir með Hilmari að mikið traust ríkti milli oddvitanna. „Þetta hefur gengið rosalega vel,“ sagði Gylfi og bætir við að það hafi skilað sér vel að flokkarnir hafi gefið sér góðan tíma í viðræður. Gylfi Þór Þorsteinsson forseti bæjarstjórnar, Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, og Jana Katrín Knútsdóttir, formaður bæjarráðs.Aðsend Spurður hvort það sé draumur að verða bæjarstjóri Mosfellsbæjar svarar Hilmar: „Draumur og ekki draumur. Ég segi það nú ekki en ég hef verið þátttakandi hér í samfélaginu í langan tíma. Ég er kannski búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ,“ segir hann og vísar þar til prófkjörsins í Sjálfstæðisflokknum í Mosfellsbæ annars vegar og svo kosninganna hins vegar. Gylfi segir að fáir sem engir núningspunktar hafi verið í viðræðunum. „Alls ekki. Það var aðallega spurning um orðalag frekar en eitthvað annað.“ Flokkarnir væru sammála um flestar stefnur. „Við höfum leitað fanga víða við að binda þetta saman,“ bætir Gylfi við. „Og allir sammála.“ Spurðir um þau mál sem þeir setja á oddinn nefna þeir hóflegar álögur á íbúa, skilvirka þjónustu og að „gera gott fyrir Mosfellinga“.
Mosfellsbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira