Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. maí 2026 16:38 Fulltrúar nýs meirihluta í Hornafirði. Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að markmið samstarfsins sé að efla búsetuskilyrði enn frekar og styrkja samfélagið í heild með ábyrgri uppbyggingu, traustum rekstri og aukinni þjónustu við íbúa. Í samkomulaginu felst eins og áður segir að Hjalti Þór Vignisson sest í stól bæjarstjóra. Gauti Árnason verður formaður bæjarráðs og Ingibjörg Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar. „Næstu ár verða mikilvæg fyrir þróun sveitarfélagsins. Tækifærin eru fjölmörg en jafnframt bíða margvíslegar áskoranir. Áhersla samstarfsflokkanna verður á hag fjölskyldna, lækkun álaga, uppbyggingu innviða og bætta þjónustu um allt sveitarfélagið. Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja jafnræði íbúa óháð búsetu og mæta áframhaldandi fólksfjölgun með markvissri uppbyggingu bæði í þéttbýli og dreifbýli.“ Flokkarnir leggi ríka áherslu á þjónustumiðaða og skilvirka stjórnsýslu, gott samráð við íbúa og opið samtal á fyrstu stigum mála. „Fræðslu- og frístundamál verða áfram í forgangi. Stefnt er að áframhaldandi uppbyggingu leik-, grunn- og framhaldsskóla, eflingu innra starfs og bættri aðstöðu fyrir íþrótta- og frístundastarf í öllu sveitarfélaginu. Jafnframt verður lögð áhersla á að styrkja list-, verk- og raungreinar.“ Í velferðarmálum verði unnið að því að bæta aðgengi að þjónustu, efla lýðheilsu og tryggja að íbúar í dreifbýli njóti sambærilegrar þjónustu og aðrir. Þá vilji flokkarnir taka vel á móti nýjum íbúum og styðja þá til virkrar þátttöku í samfélaginu. „Samstarfið byggir einnig á samþættingu umhverfis-, atvinnu- og menningarmála með það að markmiði að skapa skýrari framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið. Áhersla verður lögð á ábyrga nýtingu auðlinda, fjölbreytt atvinnulíf og öflugt menningarlíf sem styrkir sjálfsmynd samfélagsins og aðdráttarafl þess.“ Á komandi kjörtímabili verði jafnframt lögð áhersla á öflugt samstarf við ríkisvaldið og aðra opinbera aðila, meðal annars um samgöngur, heilbrigðisþjónustu og hagsmuni heimamanna í tengslum við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. Markmið samstarfsins sé skýrt, að gera Sveitarfélagið Hornafjörð að enn betri stað til að búa á og eftirsóknarverðum valkosti fyrir fólk sem vill setjast þar að. XB-XD_Málefnasamningur-A4-FINAL-3PDF392KBSækja skjal
Sveitarfélagið Hornafjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira