Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Árni Sæberg skrifar 28. maí 2026 15:48 Nýr meirihlut bæjarstjórnar Hveragerðis. Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að mikill samhljómur hafi verið meðal framboðanna í aðdraganda kosninga og finna hafi mátt margar sameiginlegar áherslur í stefnumálum þeirra. Þessi samhljómur hafi skapað sterkan grundvöll fyrir samstarfi. Viðræður D-listans og S-listans hafi verið góðar og einkennst af trausti, málefnum og sameiginlegum vilja til að vinna af ábyrgð fyrir Hveragerði á komandi kjörtímabili. Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði „Mér þykir einstaklega vænt um Hveragerði. Hér ólst ég upp og hér líður mér best. Það er mikill heiður að fá að starfa í þágu Hvergerðinga. Við erum metnaðarfull, höfum skýra sýn og er ég, ásamt þessu frábæra fólki á D-listanum og S-listanum, tilbúinn að leiða Hveragerði inn í framtíðina,“ er haft eftir Ingimar Guðmundssyni, verðandi bæjarstjóra Hveragerðis. Framboðin hafi gert með sér málefnasamning undir yfirskriftinni Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði. Þar komi meðal annars fram að markmið samstarfsins sé að sameina áherslur um ábyrga fjármálastjórn, vandaða stjórnsýslu, sterka þjónustu við íbúa, verndun bæjarbrags, öfluga lýðheilsu, græn svæði og fjölbreytt samfélagslíf. Kom skemmtilega á óvart „Viðræðurnar voru mjög góðar, uppbyggilegar og lausnamiðaðar frá fyrsta degi. Það kom mér skemmtilega á óvart hversu mikill samhljómur var í stóru málunum. Við deilum sameiginlegri sýn um ábyrga stjórnsýslu, sterka þjónustu og metnaðarfulla framtíð fyrir Hveragerði. Ég hlakka til þess að fá að vinna með þessum öfluga hópi að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar,“ er haft eftir segir Birgittu Ragnarsdóttur, oddvita S-listans og verðandi formaður bæjarráðs. Í málefnasamningnum séu tilgreind nokkur verkefni sem verði sett sérstaklega í forgang. Þar megi meðal annars nefna að aðalskipulag verði endurskoðað með aðkomu íbúa, hugað verði að því að nýr gervigrasvöllur verði nothæfur yfir vetrartímann og að sett verði upp stöðuyfirlit yfir kostnaðarsöm verkefni og stærri framkvæmdir sem bærinn stendur frammi fyrir.
Hveragerði Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira