Eden Mining lagði sóknarbörnin Árni Sæberg skrifar 29. maí 2026 15:03 Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu á miðvikudag. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur dæmdi Eden Mining, sem hefur helst það verkefni með höndum að vera milliliður fyrir Sjöunda dags aðventista við námugröft, í vil í deilu þess við nokkra aðventista í vikunni og mál þeirra á hendur félaginu fer ekki fyrir dómstóla vegna aðildarskorts þeirra.
Málið á sér langan aðdraganda og varðar óbeint klofning innan Sjöunda dags aðventista. Upp komu grunsemdir um að samningur sem söfnuðurinn hefur gert við Eden Mining, sem er í eigu aðventistanna Eiríks Ingvarssonar og Kristins Ólafssonar, væri óhagfelldur söfnuðinum. Safnaðarmeðlimir fá hins vegar ekki að sjá samninginn. Héraðsdómur vísaði frá en Landsréttur fyrirskipaði efnismeðferð Svo fór að þónokkrir þeirra höfðuðu mál á hendur félaginu til þess að fá samningnum hnekkt. Eden Mining tók til varna og krafðist þess að málinu yrði vísa frá dómi á grundvelli aðildarskorts sóknarbarnanna. Héraðsdómur féllst á að vísa málinu frá á þeim forsendum að félagsmenn hefðu ekki lögvarða hagsmuni af málsókn sinni. Landsréttur komst hins vegar að því að þar sem almennir félagsmenn kirkjunnar hefðu ekki verið upplýstir um fyrirhugaða samningsgerð við leyfisbeiðanda og samningurinn undirritaður án kynningar eða umræðu innan félagsins hefðu aðventistarnir verið sviptir rétti til ákvörðunartöku í félaginu um efni sem varðaði hagsmuni þeirra. Ótækt til efnismeðferðar Eden Mining óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar og fengu það þann 20. apríl. Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu á miðvikudag. Í honum segir að aðilar málsins hefðu einkum deilt um hvort aðventistarnir ættu lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um ógildingu samnings kirkjunnar við Eden Mining um einkarétt félagsins til nýtingar jarðefnanáma í landi kirkjunnar. Kröfu sína um ógildingu hins umdeilda samnings hafi aðventistarnir meðal annars byggt á tilteknu ákvæði laga um félög til almannaheilla. Hæstiréttur vísaði til þess að aðventistarnir hefðu í málatilbúnaði sínum ekki með viðhlítandi hætti gert grein fyrir hvernig heimild þeirra til að krefjast með málshöfðun ógildingar á ákvörðun félags á grundvelli ákvæðisins gæti skapað þeim stöðu aðila í dómsmáli þar sem gerð væri krafa á hendur viðsemjanda kirkjunnar um ógildingu á samningi sem hann hefði gert við hana. Þá hefðu þeir ekki reifað með viðhlítandi hætti á hvaða öðrum grundvelli þeir gætu haft lögvarða hagsmuni af kröfu sinni. Málatilbúnaður þeirra um hvaða lögvarða hagsmuni þeir hefðu af kröfu um ógildingu samnings kirkjunnar og Eden Mining og um aðild þeirra að máli um það sakarefni væri svo vanreifaður og í andstöðu við lög um meðferð einkamála að málið þætti ekki tækt til efnislegrar meðferðar. Hinn kærði úrskurður hafi því verið felldur úr gildi og málinu vísað frá héraðsdómi.
Námuvinnsla Ölfus Trúmál Dómsmál Deilur um iðnað í Ölfusi Tengdar fréttir Ólga meðal aðventista vegna sölu á heilu fjalli Gavin Anthony, formaður Kirkju sjöunda dags aðventista á Íslandi, sem eiga Litla-Sandfell sem til stendur að nýta sem íblöndunarefni í sement úti í Evrópu, segir að sér lítist vel á verkefnið. Samkvæmt heimildum Vísis fer því þó fjarri að allir innan safnaðarins séu á eitt sáttir um hvernig að málum er staðið. 3. september 2022 07:00 Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Jón Hjörleifur Stefánsson aðventisti segir hóp aðventista hafa kært leynisamning sem stjórnin gerði við Eden Mining, millilið sem hefur gert samning um efnissölu til Heidelberg. Þetta hljóti að setja yfirstandandi íbúakosningu um hvort Heidelberg fái að reisa verksmiðju í Þorlákshöfn í uppnám. 25. nóvember 2024 16:25 Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira
Ólga meðal aðventista vegna sölu á heilu fjalli Gavin Anthony, formaður Kirkju sjöunda dags aðventista á Íslandi, sem eiga Litla-Sandfell sem til stendur að nýta sem íblöndunarefni í sement úti í Evrópu, segir að sér lítist vel á verkefnið. Samkvæmt heimildum Vísis fer því þó fjarri að allir innan safnaðarins séu á eitt sáttir um hvernig að málum er staðið. 3. september 2022 07:00
Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Jón Hjörleifur Stefánsson aðventisti segir hóp aðventista hafa kært leynisamning sem stjórnin gerði við Eden Mining, millilið sem hefur gert samning um efnissölu til Heidelberg. Þetta hljóti að setja yfirstandandi íbúakosningu um hvort Heidelberg fái að reisa verksmiðju í Þorlákshöfn í uppnám. 25. nóvember 2024 16:25