„Þetta vita Einar og Björg“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. maí 2026 14:54 Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Vísir/Lýður Valberg Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segist óttast að fyrirætlanir nýs meirihluta um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins muni fela í sér miklar tafir á framkvæmdum og viðhalda umferðarhnútum í borginni til næstu ára. Hann segist ekki sjá handbragð Viðreisnar í meirihlutasáttmálanum og furðar sig á því að Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar vilji nú endurskoða samgöngusáttmála sem hann hafi skrifað undir fyrir átján mánuðum síðan. „
Mín fyrstu viðbrögð eru að sjálfsögðu þau að ég óska verðandi borgarstjóra og nýjum meirihluta til hamingju. Ég, og við í Samfylkingunni hlökkum til að veita þeim aðhald og styðja við góð mál,“ segir Pétur í samtali við Vísi. Líkt og fram hefur komið kynntu oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík í Viðey í morgun. Samfylkingin hefur verið í meirihluta síðustu sextán ár og ljóst að um mikil tímamót er að ræða. „Það fyrsta sem slær mig hinsvegar varðandi samstarfið eru yfirlýsingar þeirra um endurskoðun samgöngusáttmálans. Einar Þorsteinsson skrifaði sjálfur undir þennan sáttmála fyrir átján mánuðum síðan. Það er ábyrgðarhluti að rífa upp samkomulag sem öll sveitarfélög eru sammála um og ríkisstjórnin líka á tveggja ára fresti. Þetta mun bara tefja framkvæmdir og tryggja að umferðin verði verri í lengri tíma. Við erum farin á fleygiferð í uppbyggingu og ég óttast hvað þetta mun gera.“ Pétur segir mikilvægt að haldið sé við samninginn. Ekki megi láta undan óskum hvers og eins sem vilji gera breytingar á samkomulaginu, það verði einungis til þess að tefja framkvæmdir. „Þetta vita Einar og Björg. Það litla sem maður hefur séð núna frá verðandi meirihluta virðist vera frá Sjálfstæðisflokknum. Það er ekkert handbragð Viðreisnar á meirihlutasáttmálanum og ég efast um að þar sé eitthvað að finna frá Framsókn. Þetta kemur svo bara allt í ljós og ég hlakka til að sjá þau sýna á spilin.“ Hann segir Samfylkingu munu setja spurningamerki við fleiri mál meirihlutans. „Þá sérstaklega mál sem varða jöfnuð í borginni. Síðan eru þarna önnur góð mál en við munum veita þeim aðhald þetta kjörtímabil með bros á vör.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Borgarstjórn Samgöngumál Tengdar fréttir Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík. 27. maí 2026 11:09 „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. 27. maí 2026 12:03 Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. 27. maí 2026 12:14 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira
Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík. 27. maí 2026 11:09
„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. 27. maí 2026 12:03
Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. 27. maí 2026 12:14