„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Árni Sæberg og Birgir Olgeirsson skrifa 27. maí 2026 12:03 Ari Edwald í kappræðum Sýnar í aðdraganda kosninga. Á myndinni má sjá glytta í Einar Þorsteinsson og Björgu Magnúsdóttur, sem eru í nýmynduðum borgarstjórnarmeirihluta á kostnað hans. Vísir/Vilhelm Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki.
Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar kynntu í morgun nýjan borgarstjórnarmeirihluta. Í samstarfssáttmála þeirra segir að þau muni leggja áherslur á að svara ákalli borgarbúa um breytingar. Áður en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, gekk til formlegra viðræðna við oddvita Viðreisnar og Framsóknar fundaði hún einnig með Ara Edwald, oddvita Miðflokks. Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hefðu getað myndað tveggja flokka meirihluta. Áherslurnar virtust fara vel saman Í samtali við fréttastofu eftir kynningu nýs meirihluta segir Ari að honum finnist meirihlutinn ekki í samræmi við úrslit kosninganna. „Kjósendur í Reykjavík kusu breytingar og þeir kusu þá flokka sem lögðu mesta áherslu á breytingar. Miðflokkurinn setti mjög mikið af þeim málum á borðið, eins og í skipulagsmálum og samgöngumálum, að greiða úr umferð og finna hagkvæma lausn varðandi almenningssamgöngur. Það virtist vera að áherslur Sjálfstæðisflokksins færu mjög vel saman við okkar.“ Báðir flokkar hafi unnið kosningasigur en sigur Miðflokksins hafi verið miklu stærri hlutfallslega. „Hann er að vinna jafnstóran sigur og Sjálfstæðisflokkurinn í prósentustigum og í borgarfulltrúum, bætir við sig níu prósentustigum og þremur borgarfulltrúum, eins og Sjálfstæðisflokkurinn, en er nálega að fimmfalda fylgi sitt, þannig að kjósendur veittu þessum flokkum brautargengi og hreinan meirihluta til að vinna saman að áherslum sem voru mjög keimlíkar varðandi þau atriði sem hreyfðu mestum úrslitum í kosningunum. Þannig að þess vegna segi ég það að mér finnst það vera ákveðin svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkurinn skoði það ekki vandlega að vinna með okkur.“ Kannast ekkert við boð um stjórnarformannsstólinn Meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi nýs meirihluta var að verðandi borgarstjóri muni gera tillögu um að Ari verði nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta segist Ari ekkert kannast við. „Nei, ég var bara að heyra þetta núna rétt áðan, að þetta væri eitthvað sem þau hyggja sem tillögu. Það er í sjálfu sér vinsamlegt af þeim að hugsa til mín með þeim hætti og ég mun hugleiða þetta en ég hef ekkert velt því fyrir mér hingað til, því þetta var bara að koma upp og ekki sett fram í samráði við mig.“ Sjálfstæðisflokkur vilji heldur vinna til vinstri Hvers vegna heldur þú að Miðflokkur verði ekki í meirihluta í borginni? „Ég held að það sé vegna þess að að forysta Sjálfstæðisflokksins í borginni hafi haft meiri áhuga á því að vinna til vinstri og hafi haft meiri áhuga á því að vinna með Viðreisn, jafnvel þó að áherslur til dæmis Viðreisnar í mikilvægum málum, segjum til dæmis varðandi Borgarlínu, hafi verið algjörlega andstæðar við það sem Sjálfstæðisflokkurinn var að segja.“
Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira