Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. maí 2026 20:06 Íslandshótel taka við rekstri hótelanna í byrjun september. Vísir/Vilhelm Öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna verður sagt upp á þriðjudag í næstu viku. Starfsfólk Hilton Nordica var boðað á fund klukkan tvö síðdegis þar sem tilkynnt var um hópuppsögnina. Hótelin tilheyra í dag keðju Iceland Hotel Collection by Berjaya en uppsagnirnar eru liður í tilfærslu hótelanna tveggja yfir til Íslandshótela.
Hótelin eru bæði sögufræg en Nordica hótelið þekktu Íslendingar áratugum saman sem Hótel Esju og var Natura-hótelið lengi kennt við Loftleiðir. Um þrjú hundruð manns starfa á hótelunum tveimur. Boðað var til fundarins í gær með tölvupósti. Fundinum var stýrt af fulltrúum frá mannauðsdeild Berjaya-keðjunnar. Samkvæmt heimildum Vísis lýsti starfsfólk yfir óánægju með hve skamman fyrirvara það hefði fengið. Þá getur eðli málsins samkvæmt ekki hver einn og einasti starfsmaður gengið frá starfi sínu á sama tíma á stóru hóteli í upphafi sumars. Þegar hefur verið boðað til nýs fundar með starfsfólki í fyrramálið. Verði sagt upp á þriðjudag Fyrirkomulag uppsagnarinnar var kynnt á fundinum en starfsfólki mun á þriðjudag berast í tölvupósti skjal til rafrænnar undirritunar. Fundurinn var um hálftíma langur og var starfsfólki gefinn kostur á að spyrja spurninga. Samkvæmt heimildafólki fréttastofu fengust ekki skýr svör um framhaldið og upplifir margt starfsfólk sig yfirgefið af fyrirtæki sem sum hver hafi unnið fyrir í mörg ár. Þá sé fólk hlessa yfir því hvernig það eigi að halda uppi góðri þjónustu og starfsanda yfir sumartímabilið þar sem álag er mest á meðan það vinni á uppsagnarfresti. Óvissa hefur lengi hangið yfir starfsfólki hótelanna tveggja, en fréttir af yfirtöku Íslandshótela bárust fyrst starfsfólki í formi fréttatilkynningar til fjölmiðla í apríl 2025. Þær fréttir voru fljótt bornar til baka en óvissan hefur hangið yfir alla tíð síðan. Allt starfsfólk verði endurráðið Það var síðan fyrir tæpum mánuði, heilu ári eftir upprunalegu tilkynninguna, sem starfsfólk var boðað á fund og staðfest var um komandi yfirtöku. Komu stjórnendur Íslandshótela fram í fjölmiðlum samdægurs, lýstu því yfir að þrír milljarðar yrðu settir í endurbætur á hótelunum og að allt starfsfólk yrði endurráðið. Starfsfólk er þó enn uggandi því fréttirnar hafa aldrei verið staðfestar við það, það hefur fram til þessa einungis fengið að heyra þessar fullyrðingar Íslandshótela í fjölmiðlum. Þegar reynt var að ræða þetta á fundinum fyrr í dag voru þau svör gefin að samkvæmt reglum Samkeppniseftirlitsins mættu forsvarsmenn Íslandshótela ekki koma til að ræða við starfsfólk. Þurfi öll samskipti á þessum tímapunkti að fara gegnum stéttarfélög og trúnaðarmenn þeirra. Að mati starfsfólks sem fréttastofa ræddi við voru þau skilaboð ruglandi þar sem hópur á vegum Íslandshótela hafði mætt á Hilton Nordica tveimur dögum áður til að taka út hótelið. Forsvarsmenn Berjaya vildu ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa hafði samband.
Hótel á Íslandi Vinnumarkaður Ferðaþjónusta Reykjavík Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira