Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 21. maí 2026 12:31 Hildur boðar borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokks á sinn fund í dag í fyrsta skipti eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun boða borgarfulltrúa flokksins á fund sinn í dag til skrafs og ráðagerða. Það er í fyrsta skipti eftir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem oddvitinn hittir fulltrúana formlega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu borgarfulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum eða þrjá fleiri en í síðustu kosningum. Ekki er ósennilegt að von sé á fleiri tíðindum í dag eða á morgun.
Borgarfulltrúar síðasta kjörtímabils sitja nú á sínum síðasta borgarráðsfundi sem hófst í morgun en slíkir fundir eru venju samkvæmt á fimmtudögum. Síðasti fundur borgarráðsVísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur gefið út að nýr meirihluti verði kynntur fyrir 3. júní. Hún hitti oddvita Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar á tveggja tíma hádegisfundi í Hannesarholti í gær en gaf ekkert upp um framhaldið eftir þann fund. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu mun Hildur boða borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins formlega á sinn fund í dag í fyrsta skipti eftir sveitarstjórnarkosningarnar þá fyrst og fremst til skrafs og ráðagerða. Alls hlutu níu manns á lista flokksins kjör í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Hildur sagði mikilvægt í gær að Reykjavík fái öflugan meirihluta. Ekki er ósennilegt að Hildur sé á fundinum í dag að bera undir sitt fólk sjónarmið sín um meirihlutaviðræður og ákvörðun muni svo liggja fyrir í dag eða á morgun. Tveir kostir teljast líklegastir, tveggja flokka meirihluti með Miðflokki eða meirihluti með Viðreisn og Framsókn. Jafnvel kemur til greina að mynda þrettán manna meirihluta með Miðflokki og Framsókn. Björg útilokaði samstarf með Miðflokknum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Hún staðfesti það aftur við fréttastofu í gær.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira