Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. maí 2026 09:42 Ólíklegt er að mikil ánægja sé innan Viðreisnar með útspil Kristínar korter í kosningar. Kristín A. Árnadóttir, fyrrverandi sendiherra sem er í 38. sæti hjá Viðreisn í borginni, ætlar ekki greiða atkvæði með flokknum sem hún er þó í framboði fyrir. Flokkurinn sé ekki lengur valkostur fyrir sig.
Kristín skrifar athugasemd við færslu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóra. Ingibjörg Sólrún varar í færslunni við því að atkvæði til Viðreisnar sé atkvæði til Sjálfstæðisflokksins. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur lýst yfir áhuga á meirihlutamyndun með Viðreisn og Framsóknarflokknum eftir kosningar. Líkur á slíkum meirihluta eru 51 prósent samkvæmt nýrri kosningaspá Vísis. „Yfirlýsingar Bjargar eru mikil vonbrigði, en þetta hefur því miður verið að teikna sig upp. Þrátt fyrir að vera lista er Viðreisn ekki valkostur,“ skrifar Kristín. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar skilgreinir hvað atkvæði til flokksins í borginni þýði. Það sé atkvæði til frjálslyndrar, öfgalausrar miðju. „Við erum ný kynslóð Reykvíkinga sem höfum rekið okkur á kerfið með einum eða öðrum hætti og viljum snúa við forgangsröðuninni. Pólitísk forysta um að setja skólamál í forgang, vinna á innviðaskuld sem blasir við um alla borg, húsnæðisuppbygging fyrir fólk sem er til, einföldun á kerfinu, stuðningur við mannréttindi alla leið, áfram gakk með Samgöngusáttmálann fyrir komandi kynslóðir og borg sem styður framtakssamt fólk sem vill opna þjónustu eða fyrirtæki. Í kappræðum á RÚV í kvöld útilokuðum við í Viðreisn samstarf við Miðflokkinn í Reykjavík enda er pólitískur ómöguleiki að ná saman með þeim flokki útfrá okkar áherslum. Við höfum ekki útilokað annan flokk.“
Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Kosningar til sveitarstjórna fara fram sveitarfélögum landsins í dag. Kjörstaðir opna klukkan níu og verður þeim flestum lokað klukkan 22 í kvöld. Fréttastofa mun fylgjast grannt með gangi mála alla helgina – fylgjast með tíðindum af kjörstöðum, yfirmönnum kjörstjórna kynna niðurstöður talninga, leita viðbragða við gangi mála og taka púlsinn á kjósendum. 16. maí 2026 07:03 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira
Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Kosningar til sveitarstjórna fara fram sveitarfélögum landsins í dag. Kjörstaðir opna klukkan níu og verður þeim flestum lokað klukkan 22 í kvöld. Fréttastofa mun fylgjast grannt með gangi mála alla helgina – fylgjast með tíðindum af kjörstöðum, yfirmönnum kjörstjórna kynna niðurstöður talninga, leita viðbragða við gangi mála og taka púlsinn á kjósendum. 16. maí 2026 07:03