Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 13. maí 2026 21:01 Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingar í Kópavogi telur að of bratt hafi verið ráðist framkvæmdir í Hamraborg. Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Kópavogi biðlar til fólks að sýna þolinmæði. Á svæðinu muni rísa glæsilegur miðbær. Vísir/Lýður Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi sakar meirihlutann í bænum um að hafa flýtt framkvæmdum við nýjan miðbæ til að uppfylla kosningaloforð. Lítið samráð hafi verið haft við íbúa sem kvarti yfir hávaða og raski. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks vísar því á bug en biðlar til íbúa að sýna þolinmæði. Glæsilegur miðbær muni rísa á svæðinu.
Gríðarleg breyting verður á Hamraborg í Kópavogi á næstu árum en þar stendur til að reisa nýjan miðbæ og íbúðir . Áður en til þess kemur þarf að ráðast í umfangsmikið niðurrif á húsnæði. Síðastliðinn undirbúningur á niðurrifi á gömlu bæjarskrifstofunum og félagsheimili að Fannborg 2-6 sem lauk í apríl. Á næstunni liggur fyrir að rífa átta hús við Vallatröð. Skipulagið hefur verið umdeilt í gegnum tíðina. Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingar í Kópavogi telur að of bratt hafi verið ráðist framkvæmdir þar. „Við höfum verið að fara í framkvæmdir alltof fljótt. Það hefur ekkert gerst í tuttugu ár þrátt fyrir gefin loforð. Núna er verið að fara of hratt til að ná þessu fyrir kosningar. Það kemur niður á aðkomu fólks hér á svæðinu. Það er gamalt fólk hér á svæðinu m.a. og aðkoma og upplýsingagjöf hefur ekki verið nægjanleg. Það eru miklar áhyggjur af þessum framkvæmdum. Sérstaklega þar sem hér er unnið eftir uppleggi verktakans. Bærinn skilar auðu með hvernig þetta á að vera hér í miðbæ Kópavogs,“ segir Jónas. Hann segir mikilvægt að flýta sér hægt í framhaldinu og eiga meira samráð við íbúa. „Aðalatriðið er að flýta sér hægt. Það borgar sig að vanda sig og gera þetta í samráði við íbúa,“ segir Jónas. Glæsilegur miðbær að rísa Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi biðlar til fólks að sýna þolinmæði. Á svæðinu muni rísa glæsilegur miðbær. „Það sem bærinn hefur gert í öllu ferlinu er að reyna að tryggja gott samtal og upplýsingagjöf við íbúa og tryggja að aðgengismál og annað slíkt sé í góðum farvegi. Ég hvet fólk til að sýna þolinmæði. Við komumst í gegnum þetta saman. Við munum tryggja eins og frekast er unnt að þetta muni ganga eins smurt fyrir sig og frekar er unnt. Hvort sem það er gagnvart fyrirtækjum hér í kring eða íbúum. Að þessari uppbyggingu afstaðinni mun standa hér glæsilegur miðbær, Andri segir að farið hafi verið yfir verkferla í kjölfar þess að bárujárn á svæðinu fauk inn um glugga íbúa. „Auðvitað þarf að tryggja gagnvart íbúum að öryggi þeirra og eigna sé tryggt og það eru allir sammála um það, þar á meðal verktakinn Árkór, vinnueftirlitið og byggingafulltrúi Kópavogs,“ segir Andri.
Kópavogur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skipulagsmál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira