Kópavogsbær segir skilaboðin ekki af pólitískum toga Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. maí 2026 13:17 Frá veggnum. Kópavogsbær Kópavogsbær segir að ákvörðun um að nýta vegg við Hálsatorg við Hamraborg til upplýsingamiðlunar um framkvæmdir í miðbæ bæjarins sé ekki af pólitískum toga. Ákvörðun hafi verið tekin í upphafi árs.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Tilefnið er gagnrýni á að listaverk Theresu Himmer hafi horfið af veggnum og þess í stað séu nú skilaboð um uppbyggingu miðbæjar Kópavogs. Margrét Tryggvadóttir frambjóðandi Samfylkingar í Kópavogi var ein þeirra sem gagnrýndi auglýsinguna og sagði ljóst að um pólitísk skilaboð væri að ræða svo skömmu fyrir kosningar. Eigi að bæta upplýsingagjöf „Afráðið var í upphafi árs að nýta vegg við Hálsatorg undir upplýsingagjöf á vegum bæjarins í tengslum við uppbyggingu nýs miðbæjar, enda hentug staðsetning þar sem framkvæmdasvæði á Fannborgarreit skammt undan,“ segir í yfirlýsingu bæjarins. Veggurinn hafi frá árinu 2019 verið prýddur listaverki eftir Theresu Himmer. Gerður hafi verið samningur við listamanninn um tímabundið verk til þriggja ára. Lista- og menningarráð, sem í dag heitir menningar- og mannlífsnefnd, hafi styrkt gerð verksins á sínum tíma. Áður hafi verið á því myndverk eftir ungmenni í sumarvinnu og þar áður hafi veggurinn verið ómálaður. „Þegar líða tók að framkvæmdum í nýjum miðbæ vaknaði sú hugmynd að nýta vegginn fyrir upplýsingagjöf, en lögð er mikil áhersla á að upplýsa sem best um fyrirhugaðar framkvæmdir. Í því skyni hefur einnig verið settur upp sérstakur upplýsingavefur sem unnin er í samstarfi framkvæmdaaðila og Kópavogsbæjar. QR-kóði á veggnum vísar áhugasömum á vefsíðuna. Listamaðurinn, Theresa Himmer, var upplýst um að til stæði að mála yfir verkið og gerði hún enga athugasemd við það,“ segir í tilkynningunni. „Kópavogsbær áréttar að ákvörðun um að nýta vegginn til upplýsingamiðlunar er ekki af pólitískum toga, heldur er fyrst og fremst er verið að reyna sem fjölbreyttastar leiðir til að upplýsa íbúa og önnur áhugasöm um framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ. Í því skyni hafa verið haldnir íbúafundir og settur upp vefur sem fyrr segir.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira