Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Freyja Þórisdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 7. maí 2026 18:46 Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins og Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar hafa báðar mætt í skemmtiþáttinn Af vængjum fram þar sem frambjóðendur til borgarstjórnar hafa undanfarið verið gestir Odds Ævars Gunarssonar. Vísir/Anton Brink/Einar Töluvert fleiri vilja sjá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins sem borgarstjóra en Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu um hug borgarbúa til þess hver oddvitanna eigi að verða borgarstjóri.
Könnunin er í samræmi við könnun Maskínu sem birt var í gær um fylgi flokkanna í tilfelli Hildar Björnsdóttur og Péturs Marteinssonar. Flestir vilja sjá Hildi, oddvita Sjálfstæðisflokksins, sem borgarstjóra eða rúm 28 prósent en 19 prósent nefna Pétur oddvita Samfylkingarinnar. Tæplega 30 prósent vlija Hildi Björnsdóttur sem borgarstjóra og munar töluvert miklu á henni og Pétri Marteinssyni í þeim efnum sem er í öðru sæti. Þar skammt á eftir kemur Sanna Magdalena Mörtudóttir hjá Vinstrinu, tæp 18 prósent nefna hana, og svo Björg Magnúsdóttir hjá Viðreisn með 10 prósent. Athygli vekur að fylgi Sönnu er töluvert umfram fylgi Vinstrisins á meðan fylgi Bjargar er undir fylgi Viðreisnar. Svarendur könnunarinnar eru átján ára og eldri með búsetu í Reykjavík en hópurinn var dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá. Könnunin fór fram dagana 29. apríl til 6. maí og voru svarendur ríflega níu hundruð og tuttugu. Einar Þorsteinsson hjá Framsóknarflokki mælist með 8,5 prósent sem er nær tvöfalt fylgi flokksins í borginni á meðan fylgi Ara Edwald er á pari við fylgi Miðflokksins hvar hann er oddviti. Fimm prósent nefna Silju Sóleyju Birgisdóttur hjá Sósíalistum sem borgarstjóraefni, tvö prósent Kristin Jón Ólafsson Pírata og eitt prósent Sigfús Aðalsteinsson hjá Okkar borg. Guðmundur Ingi Þóroddsson hjá Flokki fólksins og Ingimar Þór Friðriksson hjá Góðan daginn mælast með undir eitt prósent fylgi sem borgarstjóraefni.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Skoðanakannanir Borgarstjórn Sósíalistaflokkurinn Viðreisn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira