Nánast búin með stafrófið Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 20. apríl 2026 13:24 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir komandi sveitastjórnarkosningar er hafin. Tuttugu og sex. Framboðin eru mörg í ár en þau hafa samtals tuttugu og sex listabókstafi. Vísir/Vilhelm Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er hafin og hafa þegar tvö hundruð og þrjátíu manns kosið hjá sýslumönnum og sendiráðum. Frambjóðendur á landinu öllu eru ríflega þrjú þúsund.
Rétt tæpur mánuður er í að landsmenn gangi að kjörborðinu til að velja sér nýjar sveitarstjórnir en kosið verður laugardaginn 16. maí. Framboðsfrestur vegna framboðs til sveitarstjórnarkosninganna rann út fyrir rúmri viku og hafa yfirkjörstjórnir allra sveitarfélaga staðfest framboðslista í sínu sveitarfélagi. Ljóst er að listakosningar verða í fimmtíu sveitarfélögum en alls eru hundrað sjötíu og átta framboðslistar á landinu öllu. Í sjö sveitarfélögum, þar sem engir framboðslistar komu fram, verður óbundin kosning en þar verða allir kjósendur í viðkomandi sveitarfélagi í kjöri nema þeir sem eru löglega undanþegnir. Þetta er í Ásahreppi, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppi, Fljótsdalshreppi, Grýtubakkahreppi, Kaldrananeshreppi og Langanesbyggð. Aðeins einn framboðslisti kom fram í fjórum sveitarfélögum en það var í Kjósarhreppi, Snæfellsbæ, Tjörneshreppi og Vopnafjarðarhreppi og er sjálfkjörið þar og fara því engar sveitastjórnarkosningar fram þar. Á föstudaginn hófst utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sýslumönnum og í sendiráðum. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir hana hafa farið vel af stað. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuborgarsvæðinu segir allt fara vel af stað. Vísir/Sigurjón „Við opnuðum klukkan tíu á föstudaginn hjá okkur og það var strax einn mættur, klukkan tíu, sem kaus og það kusu rúmlega tuttugu og tveir þann dag hjá okkur. Okkar kjörstaður, utankjörfundarstaður, er í Hlíðasmára 1 á jarðhæðinni. Það er mjög gott aðgengi og góð bílastæði. Það eru um tvö hundruð og þrjátíu manns sem hafa kosið hjá öllum sýslumönnum í sendiráðunum og á höfuðborgarsvæðinu eru þetta um hundrað og fimmtíu sem hafa kosið.“ Frambjóðendur á landinu öllu eru nærri þrjú þúsund og tvö hundruð. „Þetta eru náttúrulega mjög mörg framboð á öllu landinu. Við erum með 26 stimpla í kjörklefunum.“ Framboðin eru mörg og listabókstafir þeirra þar með líka. Þetta eru stimplar sem fólk notar þegar það greiðir atkvæði utankjörfundar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Vilhelm
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira