Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Eiður Þór Árnason skrifar 17. apríl 2026 19:21 Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni. Vísir/Vilhelm Meirihlutinn er fallinn í borginni ef marka má nýja könnun Gallups. Vinstrið er með sterka innkomu og bæta Miðflokkurinn og Viðreisn töluvert við sig frá síðustu kosningum. Á sama tíma missa Framsókn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn mikinn hluta síns fylgis. Stór hluti svarenda gaf ekki upp afstöðu sína eða kaus að skila auðu.
Vinstrið, nýtt sameinað framboð VG og Vors til vinstri, mælist með 13,5% fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Miðflokkurinn mælist með 10,7% en var með 2,4% atkvæða í kosningunum 2022. Viðreisn tvöfaldar fylgi sitt. Samkvæmt könnuninni kysu tæplega 28% Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga í dag, rúmlega 23% Samfylkinguna, rösklega 13% Vinstrið, næstum 11% Miðflokkinn, slétt 10% Viðreisn, nær 4% Framsóknarflokk og Flokk fólksins, ríflega 3% Pírata, tæplega 3% Sósíalistaflokk Íslands og rösklega 1% Okkar borg. Miklar breytingar eru frá síðustu kosningum. Gallup Jafnframt kemur fram í tilkynningu Gallup að nærri 8% svarenda myndu skila auðu og 18% tóku ekki afstöðu eða vildu ekki gefa hana upp, samanlagt um fjórðungur svarenda. Meirihlutinn fallinn Miðað við þessa niðurstöðu fengi Sjálfstæðisflokkur sjö borgarfulltrúa (fékk 6 í síðustu kosningum), Samfylkingin sex fulltrúa (5), Vinstrið og Miðflokkur þrjá fulltrúa hvor (0), Viðreisn tvo fulltrúa (1) og Framsóknarflokkur einn (4) og Flokkur fólksins einn (1) fulltrúa, samkvæmt útreikningum Gallups. Þannig fengju Samfylkingin, Vinstrið, Flokkur fólksins og Píratar sem mynda sitjandi meirihluta samtals tíu borgarfulltrúa og næðu ekki þeim tólf sem þyrfti til að halda meirihluta. Munar þar um tvo borgarfulltrúa Pírata sem detta út samkvæmt könnuninni. Spurt var: „Ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“ og „En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa?“ Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 15. apríl 2026. Heildarúrtaksstærð var 2.138 og þátttökuhlutfall 40,1%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,9 til 3,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.
Skoðanakannanir Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Sósíalistaflokkurinn Samfylkingin Flokkur fólksins Píratar Vinstri græn Vinstrið Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Tengdar fréttir Úrvalsdeild og neðri deild en restin í vandræðum Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eiga í einvígi í Reykjavík að mati prófessors í stjórnmálafræði en flokkarnir eru nær hnífjafnir samkvæmt nýrri könnun. Línur séu teknar að skýrast og skipta megi flokkunum upp í þrjár deildir. Líklega verði hægt að mynda meirihluta til vinstri eða hægri. 28. mars 2026 12:43 Vinstrið á blússandi siglingu Fylgi Vinstrisins, nýs framboðs í Reykjavík undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, eykst um rúm þrjú prósentustig milli kannanna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn keppast enn um efsta sætið. 28. mars 2026 09:41 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira
Úrvalsdeild og neðri deild en restin í vandræðum Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eiga í einvígi í Reykjavík að mati prófessors í stjórnmálafræði en flokkarnir eru nær hnífjafnir samkvæmt nýrri könnun. Línur séu teknar að skýrast og skipta megi flokkunum upp í þrjár deildir. Líklega verði hægt að mynda meirihluta til vinstri eða hægri. 28. mars 2026 12:43
Vinstrið á blússandi siglingu Fylgi Vinstrisins, nýs framboðs í Reykjavík undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, eykst um rúm þrjú prósentustig milli kannanna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn keppast enn um efsta sætið. 28. mars 2026 09:41