Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Samúel Karl Ólason skrifar 26. mars 2026 19:05 Donald Trump og Marco Rubio gagnrýndu í dag bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að koma Bandaríkjamönnum ekki til aðstoðar varðandi Hormússund. Á sama tíma segist Trump ekki þurfa á neinni aðstoð að halda. AP/Alex Brandon Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur undir með Donald Trump, forseta, um að bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu þurfi að gera meira þegar kemur að því að opna Hormússund fyrir umferð olíuflutningaskipa á nýjan leik. Rubio segir Bandaríkjamenn sífellt beðna um að styðja Úkraínu og hjálpa til í stríði sem sé á annarri heimsálfu. Þegar Bandaríkjamenn þurfi á aðstoð að halda hafi Trump fengið neikvæð svör. „
Nokkrir leiðtogar í Evrópu sögðu að þetta væri ekki stríð Evrópu,“ sagði Rubio um stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. „En jæja, Úkraína er ekki stríð Bandaríkjanna og samt höfum við lagt meira til vegna þess en nokkurt annað ríki í heiminum.“ Þá sagði hann að það væri í hag Evrópu að opna sundið á nýjan leik svo hægt væri að flytja olíu og jarðgas þar um á nýjan leik. Bandaríkin reiddu sig lítið á orku frá þessu svæði og þess vegna væri þetta í raun eitthvað sem restin af heiminum hefði hag af að bæta úr. Marco Rubio:Trump is just making the observation that, you know, I think there were a couple of leaders in Europe who said that this was not Europe’s war.Well — Ukraine is not America’s war, and yet we’ve contributed more to that fight than any other country in the world. pic.twitter.com/HEw52r4XYl— Clash Report (@clashreport) March 26, 2026 Rubio hélt því einnig fram að hægt yrði að opna fyrir siglingar um sundið á morgun, ef Íranir hættu að ógna siglingum þar um. Það væri hneykslanlegt framferði og brot á alþjóðalögum. Þá sagði hann öll þau ríki sem létu alþjóðalög sig varða ættu að gera eitthvað í málinu. Marco Rubio on Iran:The Strait of Hormuz can be open tomorrow if Iran stops threatening global shipping, which is an outrage and a violation of international law.For all these countries that care about international law, they should be doing something about it. pic.twitter.com/m3pwV7s1FE— Clash Report (@clashreport) March 26, 2026 Ítrekað harðorður í garð bandamanna Trump hefur ítrekað verið harðlega gagnrýninn á bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu síðan árásirnar á Íran hófust og Íranir lokuðu svo gott sem fyrir skipasiglingar um Hormússund. Um fimmtungur af olíu heimsins fer þar um og sambærilegt magn af jarðgasi. Lokunin hefur því leitt til mikilla verðhækkana víðsvegar um heiminn og þar á meðal í Bandaríkjunum, þó Bandaríkjamenn séu að mestu leyti sjálfu sér nægir þegar kemur að olíu og jarðgasi. Verðið þar tekur mið af heimsverði, eins og víðast hvar annarsstaðar. Trump hefur ítrekað haldið því fram frá því hann tók aftur við embætti að bandalagsríki Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu geri lítið sem ekkert fyrir Bandaríkin og hefur hann á undanförnum vikum gefið til kynna að framtíð NATO sé í húfi, komi þessi ríki ekki Bandaríkjamönnum til aðstoðar við að opna sundið og halda því opnu. Samhliða þessum ummælum hefur hann einnig ítrekað sagt að Bandaríkin þurfi ekki á aðstoð að halda. Í færslu sem Trump birti á Truth Social, samfélagsmiðli sínum, í dag skrifaði hann í hástöfum að ríki NATO hefðu nákvæmlega ekkert gert til að hjálpa þegar kæmi að „brjálæðingaþjóðinni“ Íran sem búið væri að gersigra hernaðarlega. „BANDARÍKIN ÞURFA Á EGU AÐ HALDA FRÁ NATO, EN „GLEYMUM ALDREI“ ÞESSUM MJÖG MIKILVÆGA TÍMAPUNKTI.“ Samskipti Trumps við ráðamenn í Evrópu og víðar hafa farið hratt versnandi á seinna kjörtímabili hans. Fyrir því eru ýmsar ástæður og má meðal annars nefna árásir hans í garð Grænlands, beitingar hans á tollum og persónulega gagnrýni hans í garð þjóðarleiðtoga. Trump sagði ráðamönnum í Evrópu ekki frá því að til stæði að hefja árásir gegn klerkastjórninni í Íran áður en þær hófust. Er nánast hættur stuðningi við Úkraínu Frá því Donald Trump settist aftur að í Hvíta húsinu hefur ríkisstjórn hans ekki samþykkt neina nýja umfangsmikla aðstoðarpakka handa Úkraínumönnum. Svo gott sem eina aðstoðin í formi hergagna eða peninga sem hefur borist þaðan er aðstoð sem samþykkt var í forsetatíð Joes Biden. Að undanskildum fjögur hundruð milljónum dala á ári næstu tvö ár, sem Trump samþykkti í lok síðasta árs. Þeim peningum á að verja í bandarísk vopn og hergögn sem send verða til Úkraínu. Þá hefur hann selt ríkjum Evrópu bandarísk hergögn, aðallega flugskeyti fyrir loftvarnarkerfi, sem send hafa verið til Úkraínu. Trump var spurður fyrir viku síðan að því af hverju hann hefði ekki látið bandalagsríki Bandaríkjanna vita af árásunum í aðdraganda þeirra. Þá sat hann með Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japan. Í svari sínu sagði Trump að hann hefði viljað að árásirnar kæmu á óvart. „Hver veit meira um óvæntar árásir en Japan?“ spurði Trump. „Af hverju sögðuð þið mér ekki frá Pearl Harbor?“
Bandaríkin Donald Trump NATO Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Bensín og olía Skipaflutningar Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Sjá meira