Röskva vill sjá hjúkrunarfræðinga á sjúkrabíl og meiri nýsköpun í námi Dagbjört Lára Bjarkadóttir og Ríkharður Daði Ólafsson skrifa 24. mars 2026 17:33 Tillaga um utanspítalahjúkrun Á þessu starfsári lagði Röskva fram tillögu um að efla umræðu um framtíðarhlutverk hjúkrunarfræðinga í utanspítalaþjónustu og sjúkraflutningum. Röskvuliði lagði jafnframt fram tillögu á fundi Stúdentaráðs þess efnis að SHÍ beiti sér fyrir fjölbreyttara námsframboði í diplóma- og meistaranámi í hjúkrunarfræði, með sérstakri áherslu á bráðahjúkrun á sjúkrabíl. Jafnframt voru send erindi til lykilaðila innan fagsins og háskólasamfélagsins, þar á meðal Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, deildarforseta HÍ og HA og nemendafélaga beggja skóla. Margir brugðust við og skiluðu inn umsögnum í samráðsgátt stjórnvalda um drög að aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnanna. Það sýnir að málið á fullt erindi, en margt er enn óunnið. Röskva vill halda þessari baráttu áfram í meirihluta og fylgja henni eftir með fleiri tillögum og aðgerðum. Hvað nú? Jú... kjósa Röskvu! Næstkomandi fimmtudag, 26. mars, fara fram kosningar til Stúdentaráðs og háskólaráðs Í aðdraganda þeirra hefur verið haft samband við nemendur til að kalla eftir sjónarmiðum þeirra og reynslu af náminu. Við undirrituð höfum rætt við nemendur á sviði hjúkrunar og ljósmóðurfræði, bæði í grunnnámi og meistaranámi og niðurstöðurnar sýna skýrt mynstur sem hefur endurtekið sig undanfarin ár. Nemendur lýsa víða óánægju með skipulag námsins og telja að skortur á yfirsýn og samræmi hafi neikvæð áhrif á námsupplifun þeirra. Að okkar mati liggur vandinn ekki endilega í því að kröfur deildarinnar séu of miklar, enda er hjúkrun krefjandi fag og á að vera það. Vandinn felst fremur í framkvæmdinni, þar sem skipulag er oft óskýrt, upplýsingar berast seint og aðgengi að kennslu er takmarkað. Hjúkrunarnemar hafa lengi kallað eftir auknu skipulagi og fyrirsjáanleika í náminu, meðal annars hvað varðar birtingu námsefnis, skipulag prófa og verknáms, auk betra aðgengis að upptökum úr kennslu. Í Röskvu leggjum við ríka áherslu á að bæta þessar aðstæður, enda snýst baráttan ekki aðeins um einstök mál heldur um að tryggja raunverulegt jafnrétti til náms fyrir alla nemendur. Þetta er einmitt rauði þráðurinn í stefnu Röskvu. Allir stúdentar eiga að hafa jafnt aðgengi að námi óháð fjárhagsstöðu, fjölskylduaðstæðum, búsetu, uppruna, fötlun eða öðrum þáttum. Þessi áskorun er sérstaklega brýn innan hjúkrunar- og ljósmóðurfræði, þar sem stór hluti nemenda eru foreldrar eða einstaklingar sem stunda vinnu samhliða námi. Nauðsynlegt er að mæta þörfum þessa hóps með fjölbreyttum og markvissum úrræðum. Námið má ekki byggja á þeirri forsendu að allir nemendur búi við sömu aðstæður til að sinna því. Óreiða í skipulagi og áskoranir í verklegri kennslu Ítrekað hefur verið bent á veikleika í skipulagi deildarinnar. Margir nemendur lýsa skipulaginu sem úreltu og telja erfitt að stunda námið ásamt vinnu, fjölskyldulífi og öðrum skuldbindingum. Nemendur upplifa að álagi sé illa dreift yfir misserið og að samræmi milli kennara sé ábótavant þegar kemur að verkefnum, prófum og ritgerðum, sem safnast oft saman á sama tímabil. Þegar nemendur benda á vandann hafa kennarar í sumum tilvikum gefið þau svör að þeir þurfi einfaldlega að „vinna sig í gegnum það“. Slík viðbrögð taka takmarkað mið af aðstæðum stúdenta, sérstaklega þegar námsefni og verkefnalýsingar birtast ekki með nægum fyrirvara. Röskva lagði fram tillögur innan SHÍ árið 2025 um betri álagsstýringu. Þær hafa verið samþykktar en skilað litlum árangri svo þær voru ítrekaðar 2026. Verkleg kennsla er of oft sett fram á óskipulaðgan máta, til dæmis í fyrirlestrum, umræðutímum eða færnistofum þar sem of mörg atriði eru tekin fyrir í senn og ekki gefst mikil tími í verklega færni. Slík nálgun styður illa við markvissa færniþjálfun og þjónar nemendum ekki nægilega vel. Á sama tíma virðist hermikennsla lítið nýtt, þrátt fyrir mikilvægi hennar í heilbrigðismenntun, og víða á Norðurlöndum hefur þróunin verið í átt að meiri samþættingu stafræns náms og staðnáms. Hvað ætlar Röskva að gera í meirihluta SHÍ? Ef Röskva nær meirihluta í Stúdentaráði munum við beita okkur markvisst fyrir bættum aðstæðum hjúkrunar- og ljósmóðurnema. Fyrsta skrefið er að tryggja að rödd nemenda hafi raunverulegt vægi í samskiptum við deild, skóla og háskólayfirvöld. Það er ekki nóg að hlusta á nemendur; ábendingar þeirra þurfa að leiða til sýnilegra úrbóta. Þörf er á því að ná fram raunverulegum umbótum innan hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildarinnar. Við munum þrýsta á betra skipulag námsins, skýrari ábyrgð af hálfu háskólans og meira aðgengi að kennslu. Þar undir fellur meðal annars að námsefni, skipulag og verkefni séu birt með meiri fyrirvara, að betur sé samræmt álag milli námskeiða og að upptökur úr kennslu séu aðgengilegar. Slíkt skiptir miklu máli fyrir alla nemendur, en sérstaklega fyrir þau sem eru með fjölskylduábyrgð eða vinna samhliða námi. Við viljum við sjá aukið svigrúm fyrir nýsköpun, frumkvöðlahugsun og nýjar námsáherslur, t.d. á sviði sjúkrabíla- og utanspítalahjúkrunar. Með því væri ekki aðeins verið að skapa fleiri tækifæri fyrir nemendur heldur einnig að styrkja framtíðaruppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar, innan og utan sjúkrahúsa. Við viljum minna háskólann á að hjúkrunarnemar eiga ekki að sætta sig við úrelt fyrirkomulag eða skort á fyrirsjáanleika í námi. Nauðsynlegt er að háskólinn þróist í takt við samfélagið og að námsumhverfið taki mið af raunverulegum aðstæðum stúdenta. Við hvetjum alla hjúkrunarnema og meistaranema til að kjósa Röskvu til Stúdentaráðs og háskólaráðs á Uglunni 26. mars. Hjúkrunarnemar eiga betra skilið. Dagbjört Lára, þriðja árs nemi í hjúkrunarfræði skipar 3. sæti á Heilbrigðisvísindasviði fyrir hönd Röskvu í komandi kosningum til Stúdentaráðs. Ríkharður Daði Ólafsson er 3.árs hjúkrunarfræðinemi í stjórn Röskvu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hagsmunir stúdenta Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun