Skoðun

Hvað segja hin 20.000 fyrir­tækin?

Andrés Magnússon, Hrund Rudolfsdóttir og Margrét Kristmannsdóttir skrifa

Það vakti óneitanlega athygli þegar Samtök atvinnulífsins birtu niðurstöðu viðhorfskönnunar þess efnis að 66% aðildarfyrirtækja samtakanna væru andvíg því að Ísland gengi í Evrópusambandið. Voru margir á þeirri skoðun að frekar hefði átt að beina þeirri spurningu til félagsmanna hvort að taka ætti upp viðræður að nýju við ESB, eins og spurningin mun hljóða í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst nk. En af um 2.000 aðildarfyrirtækjum SA svöruðu samtals 591 fyrirtæki þessari spurningu í könnunni og þar af 388 neitandi, eða innan við 20% aðildarfyrirtækja samtakanna. Þess vegna er sú framsetning sem sést hefur í fjölmiðlum að 66% fyrirtækja innan SA séu málinu mótfallin í besta falli villandi.

Í árlegri leit sinni að framúrskarandi fyrirtækjum skoðar Creditinfo um 22.000 fyrirtæki enda fanga að leita mun víðar en hjá þeim 2.000 félagsmönnum sem tilheyra SA. Þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki eru hryggjarstykkið í íslensku atvinnulífi er sú spurning óneitanlega mjög áleitin hvert viðhorf þeirra 20.000 fyrirtækja sem ekki eru aðilar að SA er til aðildarviðræðna við ESB.

Við þekkjum fá dæmi um að meiri upplýsingar leiði til verri niðurstöðu og því eigum við erfitt með að trúa að meirihluti forsvarsmanna lítilla og meðalstórra fyrirtækja vilji ekki skoða möguleikann á því að komast í annað og stöðugra rekstrarumhverfi. Stjórnendur þeirra þekkja af eigin raun þá áskorun sem felst í því að reka fyrirtæki með óstöðugum gjaldmiðli og þurfa að búa við þann gríðarlega fjármagnskostnað sem stendur þeim til boða á íslenskum fjármálamarkaði.

Sá aðstöðumunur sem er á milli þessara fyrirtækja og þeirra fjölmörgu sem mega starfa utan krónuhagkerfisins er beinlínis sláandi. Það eru í raun tvær tegundir fyrirtækja sem starfa á Íslandi í dag, þau sem eru lítt háð íslensku krónunni og hin sem eiga ekki annan kost og eru algerlega háð sveiflum þessa örgjaldmiðils. Þessi aðstöðumunur og skert samkeppnisstaða er nær aldrei dregin fram í umræðunni um rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og má það undrun sæta.

Við undirrituð höfum um árabil staðið fyrir atvinnurekstri hér á landi og/eða verið í framvarðarsveit í hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki í verslunar- og þjónustugreinum. Reynsla okkar af þeim vettvangi hefur sannfært okkur um að íslenska krónan er einn stærsti dragbítur í daglegum rekstri fyrirtækja í þeim greinum. Í ljósi þessarar reynslu teljum við það beinlínis útilokað að 66% fyrirtækja á Íslandi séu ekki tilbúin til að láta á það reyna hvort annar gjaldmiðill en íslenska krónan geti ekki fært þeim lækkun á rekstrarkostnaði og meiri fyrirsjáanleika en nú er. Að tengjast með enn traustari hætti helstu viðskipta- og vinaþjóðum Íslands.

Höfundur eru lögfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri SVÞ, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi formaður SVÞ og loks framkvæmdastjóri og fyrrverandi formaður FKA og SVÞ.




Skoðun

Sjá meira


×