Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar 23. ágúst 2026 10:30 Orð þjóðskáldsins, raunar um samfélag manns og hests, eiga ekki síður við um samfélög manna. Sumir hafa nú á orði að Íslendingar hafi alltaf getað ráðið ráðum sínum sjálfir og þurfi ekki annarra við. Ef litið er til sögunnar settust sjálfstæðir norrænir menn að á Íslandi í árdaga, en ekki leið á löngu áður en samfélagið var skipulagt. Margt var ekki á færi einstaklinga: vörn gegn ágangi annarra, smölun búfjár, en líka umönnun þeirra sem áttu engan að. Íbúar landsins urðu að þjóðfélagi með Alþingi sem setti lög og reglur um skipan þess, meðal annars um tímatal. Ekki löngu síðar ákvað Alþingi að Íslendingar gengju í samfélag Rómarkirkjunnar; að íbúar yrðu kristnir. Því fylgdu reglur og kvaðir. Hefndarskyldan, drifkraftur í átökum manna á milli, var aflögð, en menn tóku upp samræmda hætti hins kristna samfélags, að lesa og skrifa, að telja og reikna í tugakerfi, og júlíanska tímatalið. Seint verður allt upp talið, en mergur málsins er að Íslendingar völdu að tengjast evrópskri menningu og laga sig að siðum hennar en halda jafnframt sínu, ekki síst tungumálinu og gamla tímatalinu um sumarkomu og veturnætur þegar hentaði. Saga Íslendinga hefur verið mynda tengsl við önnur og stærri samfélög, læra af þeim og vinna með þeim, en laga sig jafnframt að því sem átti við landið og hnattstöðu þess í klæðaburði, húsakosti, og ræktun lands og búfénaðar. Fjarlægðin frá öðrum löndum og þjóðum og opið Atlandshafið voru landsbúum ógn en jafnframt vörn fyrir innrás. Nú eru aðrir tímar. Evrópuþjóðir höfðu lengi barist innbyrðis á banaspjótum. Að loknum hildarleik fyrir miðja síðustu öld þar sem ein þjóð taldi sig þurfa meira pláss, „Lebensraum“, en hún hafði til umráða, tóku menn höndum saman. Nóg væri komið. Ákveðið var að fyrirbyggja deilur, m.a. með því að opna viðskipti, losa um höft og mörk, en styrkja kynni og friðsamleg samskipti milli þjóðanna. Enn standa Íslendingar í þeim sporum að velja hvort þeir vilji tengjast samfélagi Evrópubúa nánari böndum, en tryggja jafnframt að halda sínu, tungumálinu, menningunni og lífsviðurværinu til lands og sjávar. Nándin er orðin meiri en fyrrum, menn geta skroppið á fundi á meginlandinu að morgni og komið heim að kvöldi. En hafið er ekki lengur vörn, ógnin getur borist úr lofti með gervihnöttum, flugvélum og drónum, jafnvel neðansjávarbúnaði. Er ekki vænlegt að verða hluti af samfélagi sem setur frið og öryggi í öndvegi? Utan þess geisa stríð þar sem ríki ásælast lönd annarra, Ísraelar lönd Palestínu, Rússar lönd Úkraínu, og jafnvel Bandaríkin ásælast Grænland innan danska ríkisins. Aðrir varast að grípa inn í svo að heimurinn leysist ekki upp í allsherjar átök. Er ekki betra að standa þá ekki ein ef aðrar þjóðir kynnu að ásælast íslenskt landrými? Er ekki rétt að segja „Já“ í komandi atkvæðagreiðslu 29. ágúst um að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið til að komast að raun um hvort það yrði ekki Íslendingum til heilla að gerast hluti af öflugu samfélagi um frið, öryggi og greið viðskipti, þar sem t.d. innbyrðis tollastríð eru úr sögunni? Höfundur er eftirlaunaþegi, fyrrum prófessor og stærðfræðikennari á ýmsum skólastigum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar