Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2026 15:41 Ísaksskóli er einkaskóli sem starfar í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þar hefur meðal annars farið fram kennsla fyrir fimm ára börn. Skóli Ísaks Jónssonar Kópavogsbær ætlar að ganga til samninga við Ísaksskóla um að reka nýjan leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Menntaráð bæjarins samþykkt viljayfirlýsingu þess efnis í gær.
Ný hverfi í Vatnsendahvarfi er nú í skipulags- og uppbyggingarferli í Kópavogi. Gert er ráð fyrir samreknum leik- og grunnskóla fyrir börn upp í 4. fekk sem á að geta hafið starfsemi árið 2029. Viljayfirlýsing milli bæjarins og Skóla Ísaks Jónssonar, einkaskóla sem rekinn er í Hlíðahverfi í Reykjavík, var samþykkt með atkvæðum fulltrúa meirihlutans í menntaráði Kópavogsbæjar í gærkvöldi. Gengið er út frá því að ekki verði innheimt skólagjöld í nýja skólanum samkvæmt viljayfirlýsingunni sem var lögð fram á fundi menntaráðs. Bærinn sjálfur á að leggja til húsnæðið og eiga það ásamt búnaði. Mögulegur rekstur Ísaksskóla á nýjum skóla í Kópavogi hefur ekki áhrif á starfsemi hans í Reykjavík, að því er kemur fram í tilkynningu á vef skólans sem birtist í dag. Engin áform séu uppi um að hann verði fluttur eða starfseminni breytt. „Verkefnið sem nú er til skoðunar getur, ef vel gengur, orðið að því að Ísaksskóli reki nýjan skóla í Kópavogi, með nýju skólasamfélagi og byggður á þeim gildum og starfsháttum sem einkenna Ísaksskóla. Með öðrum orðum: ef nýr skóli verður að veruleika verður hann viðbót — ekki staðgengill fyrir núverandi Ísaksskóla,“ segir í tilkynningunni. Vildu fresta vegna skorts á upplýsingum Fulltrúar minnihlutans vildu fresta afgreiðslu málsins en tillögu þeirra um það var hafnað. Þau sögðust telja að það væri ótímabært að skrifa undir viljayfirlýsinguna þar sem nauðsynlegar valkostagreiningar lægju ekki fyrir og ekki hefði verið gerð grein fyrir samningsmarkmiðum bæjarins. Því væri ekki hægt að meta hvort ákvörðun um viðræður við Ísaksskóla væri tekin á málefnalegum og faglegum grunni. Meirihlutinn í ráðinu fagnaði hins vegar viðræðunum. Það samræmdist vel menntastefnu Kópavogsbæjar að fá Ísaksskóla til að reka skólann. Sá skóli byggi yfir áralangri reynslu af menntun yngstu barnanna og hefði frá stofnun kennt fimm ára börnum og nemendum á yngsta stigi grunnskóla. Viljayfirlýsingunni var vísað áfram til bæjaráðs og stjórnar til afgreiðslu.
Kópavogur Leikskólar Grunnskólar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira