Ekki hættur í Samfylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Framsókn Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2026 10:31 Siggeir F. Ævarsson, nýbakaður framsóknarmaður. Hann leiddi lista Samfylkingarinnar í Grindavík í síðustu sveitarstjórnarkosningum en náði ekki inn í bæjarstjórn. Hann tekur nú sæti neðarlega á lista Framsóknarflokksins. Formaður Samfylkingarinnar í Grindavík segist hvergi nærri hættur í flokknum þó að hann sé á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Erfitt hafi verið að fá fólk á lista fyrir Samfylkinguna og hann því ákveðið að taka slaginn með Framsókn.
Athygli vakti að Siggeir F. Ævarsson, formaður Samfylkingarinnar í Grindavík og oddviti hennar í síðustu kosningum, var í ellefta sæti framboðslista Framsóknarflokksins þegar hann var kynntur í gær. Siggeir var jafnvel titlaður formaður Samfylkingarinnar í Grindavík á listanum. Samfylkingin náði ekki inn manni í bæjarstjórn í síðustu kosningum og segir Siggeir að það hafi ekki gengið vel að finna frambjóðendur í ár. „Ég ákvað að í stað þess að gera ekki neitt að taka slaginn með þessu góða fólki í Framsóknarflokknum,“ segir Siggeir í viðtali við Vísi. Framboðið fyrir Framsókn bar nokkuð brátt að. Siggeir segist hafa sett sig í samband við Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur, oddvita Framsóknarflokksins og forseta bæjarstjórnar, sem hafi tekið vel í að setja hann á listann. Framsóknarfólkið í sveitarstjórninni hefur staðið sig vel eftir að bærinn var rýmdur fyrir rúmum tveimur árum, að mati Siggeirs. „Mér finnst sveitarstjórn, sérstaklega í minni sveitarfélögum, alltaf snúast meira um fólk en flokka. Ég er ekkert genginn í Framsókn, ég er bara að vinna með góðu fólki að uppbyggingu Grindavíkur. Ég er mikill samfylkingarmaður og myndi seint titla með framsóknarmann,“ segir Siggeir sem sóttist ekki eftir sæti ofar á listanum. Róa öll í sömu átt Útlit er fyrir að aðeins tveir listar verði í framboði í Grindavík í vor: Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Þegar hefur verið ákveðið að Rödd unga fólksins, sem á einn bæjarfulltrúi, bjóði ekki fram í ár. Siggeir segist telja að hagsmunir allra Grindvíkinga séu um það bil þeir sömu. Umræða hafi komið upp um hvort rétt væri að stilla aðeins upp einu framboði. Það hafi þó reynst erfitt í framkvæmd með flokka sem standi á gömlum merg. „Við erum öll að róa í sömu átt, að byggja bæinn okkar upp aftur og tryggja að það verði hægt að búa og starfa í Grindvík aftur,“ segir nýbakaði framsóknarmaðurinn.
Grindavík Sveitarstjórnarmál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira