Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. mars 2026 22:42 Augnablikum eftir að upptökum á nauðguninni lauk lenti fólkið í hörkulegum árekstri á Kópavogsbraut. Maðurinn reyndi að aka á brott en tókst ekki enda bíllinn mikið skemmdur, svo skemmdur að honum var ekki ekið aftur. Vísir/Arnar Karlmaður hefur verið dæmdur til tæplega þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðgun sem hann tók upp myndskeið af og braut þannig gegn kynferðislegri friðhelgi. Brotaþoli var kærasta mannsins þegar brotin áttu sér stað. Meðal lykilsönnunargagna var mæling á ástandi fólksins sem lenti í harkalegum árekstri skömmu eftir að nauðgunin átti sér stað.
Landsréttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti þar með niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur fyrir rúmu ári. Málið má hins vegar rekja til seinni hluta ágústs 2022 þegar konan mætti á lögreglustöð og sagði manninn endurtekið hafa brotið á sér síðan þau, bæði í mikilli neyslu, hófu samband fyrr á árinu. Sá myndband í síma Hún hefði skoðað síma hans meðan hann var í sturtu og séð þar fjölda myndbanda sem sýndu manninn hafa kynmök við sofandi konur. Eitt slíkt hefði verið af henni. Hún sendi sér myndbandið eftir að hafa skoðað það og þar hefði sést þar sem maðurinn hafði samræði við konuna á meðan hún var sofandi í aftursæti bíls um klukkan 13:30 þann 18. júlí 2022. Konan sagði allt hafa verið gert gegn hennar vilja en hún hefði verið svefnvana og í mikilli og langvinnri neyslu. Hún hefði á þeim tíma bæði verið búin að reykja krakk og taka oxycontin. Maðurinn hefði auk þess gefið henni Xanax-töflur, Benzó og Rivó. Þá sagði hún að um klukkustund síðar hefðu þau lent í árekstri í Kópavogi og blóðsýni tekin úr þeim báðum. Vísir fjallaði um handtöku manns eftir árekstur í Kópavogi þennan dag. Karlmaðurinn neitaði sök. Hann sagðist hafa verið í sambandi með konunni í tvo til þrjá mánuði en þau á þessum tímapunkti verið búin að slíta sambandinu. Frásögn hennar væri hefndaraðgerð. Konan hefði veitt samþykki og hún væri að búa til kynferðislegt efni og selja á vefsíðu. Þá hefði konan ekki verið rænulaus á meðan á atvikum stóð. Í mikilli vímu augnablikum eftir nauðgun Samkvæmt skýrslu tæknideildar lögreglu var myndbandið tekið upp klukkan 13:24 umræddan dag og tilkynning um umferðaróhapp barst 13:34. Voru þá liðnar þrjár mínútur frá lokum upptökunnar. Í konunni mældist mikið magn amfetamíns, svo mikið að meðvitund hafi í slíku ástandi líkast til verið skert og konan jafnvel í dái. Studdi það framburð konunnar um ástand hennar þegar brotið átti sér stað. Töluvert magn mældist sömuleiðis í manninum en gildin þó ekki jafnhá og hjá konunni. Dómurinn horfði til þessa og sömuleiðis þess sem sást og heyrðist á myndbandinu þar sem konan virtist undir miklum áhrifum og bæði kveinkaði sér og kjökraði undan athöfnum mannsins en hélt áfram að sofa. Í lok myndbandsins segist hún raunar vera sofandi og segir dómurinn af myndbandinu að dæma að konan hafi ekki haft líkamlega burði til að sporna gegn háttseminni eða tjá manninum afstöðu sína nema með takmörkuðum hætti. Tvær milljónir króna í miskabætur Dómurinn keypti ekki þá vörn mannsins að konan hefði verið að hefna sín með því að leggja fram kæru. Þá skipti sömuleiðis ekki máli þó að konan hafi í samskiptum sínum við manninn lýst kynórum sínum og sjálf tekið upp kynferðisleg myndskeið af sér eða þeim. Taldi dómurinn að maðurinn hefði mátt vita að konan hefði verið meðvitundarlítil vegna neyslu og þannig notfært sér ástand hennar til að hafa við hana samræði og taka það upp. Var hann dæmdur í tveggja ára og níu ára fangelsi og til að greiða konunni tvær milljónir í miskabætur. Karlmaðurinn er ekki nafngreindur í dómnum og má telja að það sé til verndar konunni en sem fyrr segir voru þau í sambandi í nokkra mánuði í aðdraganda brotsins.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Fíkn Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira