Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 9. mars 2026 12:14 Vinstra megin má sjá eldhaf í Tehran eftir að Ísraelar sprengdu þar olíubirgðageymslu. Hafsteinn Hauksson er svo hægra megin. AP og Kvika Hráolíuverð hefur ekki verið hærra í fjögur ár en við opnun markaða í morgun kostaði tunnan ríflega hundrað bandaríkjadali. Frekari hækkanir gætu orðið ef stríðið dregst á langinn.
Rúm vika er síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar gerðu árásir á Íran sem markaði upphaf stríðsins. Fátt bendir til þess að stríðinu ljúki í bráð en ísraelski herinn gerði síðast loftárásir á Íran í nótt. Stríðið hefur haft veruleg áhrif á hráolíuverð sem hækkað hefur í kringum 40% frá því það hófst. „Það er búið að tendra púðurtunnu á mjög viðkvæmu svæði og þá er enginn sem hefur stjórn á því hvernig þetta endar. Ég held að ef einhver vissi hvernig þessu væri að fara að ljúka, þá værum við ekki að sjá olíutunnuna á yfir 100 dollara fatið. Þannig að ég held að það eitt og sér sýni hvað það er mikil óvissa um það hvernig mun spilast úr hlutum þarna á þessu svæði,“ segir Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku. Tvennt skýri helst þessar hækkanir á olíuverði. „Það eru annars vegar árásir á olíuinnviði í flóanum og svo sú staðreynd að Íranar hafa lokað skipaumferð um Hormússund núna í um sirka vikutíma. Þetta svæði er mikilvægt fyrir olíuframleiðslu í heiminum. Það er í kringum 20% af allri bæði olíuframleiðslu og jarðgasframleiðslu sem á sér stað þarna í þessum flóaríkjum og þegar þetta framboð dettur út af heimsmarkaði að þá hefur það mjög hratt áhrif á verð.“ Ef stríðið dregst á langinn gæti olíuverð haldið áfram að hækka. „Ég held að olíuverð geti alveg haldið áfram að hækka ef það verður ekki útlit fyrir að þessum átökum linni og að umferð um Hormússund opnist núna á næstu dögum eða vikum.“ Áhrifin hér á landi hafi þegar birst í hækkandi bensínverði og búast megi við frekari hækkunum. Þá gæti verðbólga aukist. „Við höfum líka ágætt fordæmi fyrir því hvaða svona áhrif orkuverðshækkanir hafa frá árinu 2022 þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Þá fór olíuverð upp í rúmlega 120 dollara á fatið og þá hækkaði verðbólga um rétt rúmlega 1% út af beinum áhrifum orkuverðshækkana. En á móti kemur hagvöxtur hérna á þeim tíma var í kringum 9% á árinu 2022, 5% á árinu 2023. Þannig að það er ekki sjálfgefið að þetta setji allt á hliðina hjá okkur en við erum auðvitað með hagkerfi sem er kannski í viðkvæmari stöðu núna og þetta er að koma á versta tíma með tilliti til þess að ná verðbólgu niður.“
Bensín og olía Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Skipaflutningar Hernaður Tengdar fréttir Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð. 9. mars 2026 07:05 Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðið við Íran aðeins munu enda með sameiginlegri ákvörðun hans og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um að láta af árásum á landið. 9. mars 2026 06:42 Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf „draum sem þeir ættu að taka með sér í gröfina“. Íranir og Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram í nótt og í morgun. 7. mars 2026 08:12 Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira
Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð. 9. mars 2026 07:05
Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðið við Íran aðeins munu enda með sameiginlegri ákvörðun hans og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um að láta af árásum á landið. 9. mars 2026 06:42
Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf „draum sem þeir ættu að taka með sér í gröfina“. Íranir og Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram í nótt og í morgun. 7. mars 2026 08:12