Þrír með gervigreind leysa af tæplega tuttugu manna teymi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 7. mars 2026 14:02 Finnur Magnússon er framkvæmdastjóri Dalacare RAX Borið hefur á því að forritarar á Íslandi hafi misst starfið vegna gervigreindar sem verður sífellt betri. Verkefni sem tóku áður vikur og kröfðust mannafla er hægt að klára á örskömmum tíma.
Möguleikar gervigreindarinnar halda sífellt áfram að aukast og að sögn forritara til tuga ára hefur geta gervigreindarforrita á borð við Claude og önnur forrit aukist í veldisvexti á síðustu vikum. Finnur Magnússon, framkvæmdastjóri Dalacare, segir mikla óvissu ríkja í geiranum þar sem algjör straumhvörf hafa orðið nýlega. Gervigreindin sé farin að forrita sig sjálf sem flýti verulega þróuninni. „Mörg okkar eru að klóra okkur í hausnum yfir því hvað er að gerast, því hlutirnir eru að breytast mjög hratt. Sérstaklega á síðustu vikum,“ sagði Finnur í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það eru allir frekar ringlaðir bara, fólk er að reyna skilja þetta. Sumir eru spenntir, aðrir eru hræddir og margir eru bæði.“ „Þá þarftu ekki lengur fimmtán til tuttugu manna teymi“ Hugbúnaðarverkefni sem kröfðust áður tíma og mannafla er núna hægt að rumpa af á skömmum tíma. „Á hverjum degi kemur eitthvað út sem fær okkur til að endurhugsa allt í lífinu í raun og veru. Í dag geturðu lýst kerfi og fengið bara lausn sem þú getur gefið út. Þá þarftu ekki lengur fimmtán til tuttugu manna teymi til að búa til lausn. Einn einstaklingur getur gert það sem stór hópur gerði áður á mörgum mánuðum á örfáum dögum. Og þetta var að gerast bara núna á síðustu vikum? „Í raun og veru.“ Þrír einstaklingar með gervigreind í staðinn fyrir tæplega tuttugu manna teymi Með hjálp gervigreindarinnar gat Finnur ásamt teymi sínu hannað forritunarlausnir á hálfum degi sem hefði áður tekið eina til tvær vikur. „Þau sem voru skemmst á veg komin voru einhvern veginn með gæsahúð eftir þennan föstudag. Við erum farin að vinna allt öðruvísi í dag.“ Borið hefur á því að íslenskir forritarar hafi misst vinnuna vegna breytinga. „Það hefur dregið úr ráðningum og ég hitti fólk í gærkvöldi þar sem var verið að loka skrifstofunni hjá þeim hér á Íslandi. Sá sem ég kannaðist við þar sagði að það væri vegna þess að það eru tveir eða þrír einstaklingar með gervigreind að koma í staðinn. Ég held að þetta sé átjan til nítján manna vinnustaður.“
Gervigreind Tækni Vinnumarkaður Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira