Ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðurinn Dagný Aradóttir Pind, Eva Hjörtína Ólafsdóttir, Henný Hinz og Sigrún Birna Björnsdóttir skrifa 4. mars 2026 09:00 Ofbeldi í nánum samböndum eru algeng og alvarleg brot sem hafa margþættar afleiðingar fyrir brotaþola og samfélagið allt. Alþjóðleg tölfræði sýnir að um þriðjungur kvenna hefur upplifað líkamlegt, andlegt eða kynferðislegt ofbeldi af hálfu maka á lífsleiðinni. Síðustu ár hafa verið tilkynnt yfir 1000 tilviki heimilisofbeldis til lögreglu á hverju ári og fer þeim fjölgandi. Samkvæmt þeim tölum sem liggja fyrir hjá lögreglunni eru konur þolendur í um 75% tilvika og karlar gerendur í 75-80% tilvika þegar horft er til ofbeldis af hálfu maka eða fyrrum maka. Líklega eru þessar tölur þó aðeins toppurinn á ísjakanum, enda vitað að aðeins brot tilfella er tilkynnt. Ofbeldi í nánum samböndum birtist á margan hátt. Það getur til dæmis verið líkamlegt-, kynferðislegt, andlegt-, fjárhagslegt-, stafrænt ofbeldi eða umsáturseinelti. Ofbeldi getur staðið yfir í langan tíma og því lýkur langt í frá alltaf þegar sambandi er slitið. Afar erfitt getur verið fyrir brotaþola að yfirgefa ofbeldissambönd og eru margar ástæður fyrir því. Þrátt fyrir mikla umræðu um kynbundið ofbeldi á Íslandi hefur samhengið á milli vinnumarkaðar og ofbeldis í nánum samböndum ekki fengið athygli. Vinnustaðir geta gengt mikilvægu hlutverki í því að styðja þolendur ofbeldis og stefna stjórnvalda á því sviði sömuleiðis. Slíkur stuðningur getur veitt öryggi þegar heimilið er ekki öruggt og vinnusamband getur tryggt stöðugleika og fjárhagslegt öryggi fyrir brotaþola. Fjárhagslegt sjálfstæði er lykilþáttur þegar kemur að því að yfirgefa ofbeldissamband. Þá getur ofbeldi í nánu sambandi haft áhrif á getu brotaþola til að mæta í vinnu og sinna henni með fullnægjandi hætti og leitt til brotthvarfs af vinnumarkaði. Þróun á alþjóðavettvangi Alþjóðasamþykktir fjalla í auknum mæli um ofbeldi í nánum samböndum og tengsl þess við vinnumarkað. Þar má nefna ILO-samþykkt nr. 190 um áreitni og ofbeldi, sem íslensk stjórnvöld lýstu yfir árið 2019 að yrði fullgilt hér á landi, en það hefur ekki enn verið gert. Þá má nefna Istanbúl sáttmálann, sem Ísland er aðili að, og Evróputilskipun frá 2024 um kynbundið ofbeldi, sem hefur þó ekki gildi hér á landi. Á síðustu árum hefur verið mikil þróun víða um heim þegar kemur að tengslum vinnumarkaðar og ofbeldis í nánum samböndum. Hún birtist í lagasetningu, kjarasamningum og aðgerðum á einstökum vinnustöðum, einkum hjá opinberum aðilum og stærri fyrirtækjum. Þetta hefur m.a. gerst í Ástralíu, Kanada, Írlandi, Ítalíu, Nýja Sjálandi, Danmörku og Slóveníu. Aðgerðirnar eru af ýmsum toga, en þar má nefna launað leyfi frá störfum til að takast á við afleiðingar ofbeldis, vernd gegn uppsögnum, möguleika á sveigjanlegum vinnutíma eða að skipta um staðsetningu vinnu. Dæmi eru um rýmri rétt til atvinnuleysisbóta og á sumum stöðum er í boði beinn fjárhagslegur stuðningur fyrir brotaþola. Stutt er síðan að flest þessi úrræði tóku gildi en þær greiningar sem gerðar hafa verið benda til þess að árangurinn sé jákvæður og skipti þolendur miklu máli. Stjórnvöld og vinnumarkaðurinn grípi til aðgerða Vinnustaðir, stjórnvöld og aðildar vinnumarkaðarins geta hjálpað til við að vekja athygli á og stuðla að hugarfarsbreytingu varðandi ofbeldi í nánum samböndum. Eitt það mikilvægasta sem brotaþolar ofbeldis þurfa á að halda er viðurkenning á því ofbeldi sem hefur átt sér stað og stuðningur til þess að takast á við afleiðingarnar. Fræðsla inni á vinnustöðum, ekki síst fyrir stjórnendur, getur aukið líkur á því að vel sé tekið á móti þolendum ofbeldis á vinnustöðum, sem svo eykur líkur á því að viðkomandi komist úr ofbeldissambandi. Það er kominn tími til þess að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins taki höndum saman, viðurkenni áhrif ofbeldis í nánum samböndum á vinnumarkaðinn og grípi til aðgerða. Fyrirmyndirnar eru til staðar. Ísland státar sig af því að vera fremst í flokki þegar kemur að jafnréttismálum og því er mikilvægt að þessi málaflokkur sitji ekki á hakanum. Samtök launafólks eru tilbúin til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. ASÍ, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands boða til morgunverðarfundar fimmtudaginn 5. mars kl. 9-10:30 á Hilton Reykjavík Nordica þar sem verður fjallað um málefnið. Höfundar eru Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, Eva Hjörtína Ólafsdóttir, sérfræðingur í kjaramálum hjá Fíh, Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ og Sigrún Birna Björnsdóttir, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum hjá KÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagný Aradóttir Pind Heimilisofbeldi Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar