Skoðun

Ertu þroska­heft?

Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar

Fyrir þau ykkar sem skiljið ekki meininguna með orðinu „þroskahömlun“, þá er verið að vísa til fólks sem er með þroskahömlun af einhverju tagi.

Fólk sem er með þroskahömlun er t.d. oft lengur að læra suma hluti, en fljót/ur að læra aðra hluti. Ef orðið „þroskaheftur“ er notað, þá finnst viðkomandi sem er verið að tala um að það sé verið að tala niður til hans/hennar og það er aldrei fallegt. Að vera heftur á einhvern hátt er að geta lítið sem ekkert gert, sagt var að fólk væri fávitar eða vangefið.

Orðið „þroskaheftur“ er líka enn notað í íslensku samfélagi á niðrandi hátt. Það er til dæmis oft notað þegar fólki finnst einhver gera eitthvað heimskulegt eða asnalegt. Þá getur maður heyrt fólk segja við aðra: „Ertu þroskaheft/ur?“

Þessi orð eru ljót og ég hef tamið mér að nota þau ALDREI.

Við erum alveg jafn klár og aðrir

Ég hef sjálf lent í því að orðið „þroskaheft“ var notað um mig af pabba mínum. Hann vissi að sjálfsögðu ekki betur og meinti þetta ekki þannig (hann er af gamla skólanum). En í eitt skiptið fékk ég nóg, skrifaði orðsendingu til pabba um að nota ekki þetta tiltekna orð og bað hann um að nota fallegra orðalag. Við sem erum með þroskahömlun, það þýðir ekki að við getum ekki gert neitt og við erum alveg jafn klár og aðrir.

Ég er stolt af mér!

Ég er t.d. með einhverfu og ég er STOLT af mér fyrir það. Ég er stolt af mér af því að ég er sú sem ég er og sú sem ég vil vera. Ég bý ein með páfagauk og fjórum dúkkubörnum. Ég á fallegt heimili og mér líður vel í íbúðinni minni.

Ég geri handavinnu, er að læra á píanó, hef spilað á tónleikum. Ég spilaði á nemendatónleikum í Logalandi í Borgarfirði. Ég fæddist á Akranesi en er uppalin í Lundarreykjadalnum, á bænum Skálpastöðum. En ég bý á Akranesi og líkar það vel. Takk fyrir að lesa/hlusta.

Ef þið viljið vita meira um lífið mitt geti þið horft á myndbandið Dagur í mínu lífi, sem Átak félag fólks með þroskahömlun gerði með mér.

Höfundur er félagi í Átaki, félags fólks með þroskahömlun.




Skoðun

Sjá meira


×