„Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Jakob Bjarnar skrifar 27. febrúar 2026 15:17 Það fór ekki fram hjá pólitískum andstæðingum Samfylkingarinnar að borgarstjórinn Heiða Björg Hilmisdóttir, sem skipar annað sætið á framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, var fjarri góðu gamni þegar frambjóðendur voru myndaðir í bak og fyrir. Samfylkingin Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var ekki viðstödd kynningu á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni síðdegis í gær. Eftir því var tekið að Heiða Björg var ekki á hópmynd sem tekin var og frambjóðendur hafa keppst við að dreifa á samfélagsmiðlum. Pólitískir andstæðingar telja fjarveru Heiðu benda til ósættis innan raða Samfylkingarinnar.
Heiða Björg hefur verið sögð veik en hefur þó verið úti um borg og bý í gær og dag að skrifa undir samninga fyrir hönd borgarinnar. Vonbrigði með niðurstöðuna úr prófkjörinu Samfylkingin boðaði til fundar klukkan fimm síðdegis í Þróttaraheimilinu í Laugardal í gær. Þangað streymdu frambjóðendur flokksins í borginni og fleira Samfylkingarfólk enda á dagskrá að svipta hulunni af 46 manna lista flokksins. Pétur Hafliði Marteinsson leiðir listann eftir sigur á Heiðu Björgu í nýlegu prófkjöri flokksins. Pétur faðmar Regínu Ásvaldsdóttur að sér á fundi Samfylkingarfólks í Reykjavík í gær. Regína hættir sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ og tekur sjöunda sæti listans. Í bakgrunni eru Sveinn Rúnar Hauksson og Skúli Helgason.Samfylkingin Pétur var að vitaskuld mættur á kynninguna í gær eins og meirihluti þeirra sem manna listann. En engin Heiða Björg og fór sú fjarvera ekki fram hjá þeim sem vilja rýna í myndina. Heiða Björg hafnaði í öðru sæti í prófkjörinu en tók sér umhugsunartíma til að ákveða hvort hún myndi þiggja sætið. Hún sagði eftir ósigurinn gegn Pétri að það væru henni gríðarleg vonbrigði að reyndri konu væri ekki treyst fyrir fyrsta sætinu: „Ég hélt að Samfylkingin væri komin á þann stað.“ Steinunn segir Heiðu veika Eftir þriggja daga umhugsun sagðist Heiða Björg ætla að taka slaginn og þiggja annað sæti listans. Ljóst mátti þá vera að þungt var í henni en aðspurð sagðist hún ekkert hafa heyrt frá Kristrúnu Frostadóttur formanni flokksins þá daga er hún lá undir feldi. Kristrún hefur ekki gefið upp hverjum hún greiddi atkvæði sitt en meðal annars vakti athygli að Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra og náinn samstarfsmaður Kristrúnar, lýsti yfir stuðningi við Pétur. Er það meðal annars haft til marks um að Pétur hafi notið stuðnings forystu flokksins sem fór ekki vel í borgarstjórann. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skipar þriðja sæti listans. Hún birti hópmyndina af frambjóðendum Samfylkingarinnar á Facebook-síðu sinni í gær eins og fleiri frambjóðendur. Í athugasemd er spurt: „Heiða hætt?“. Steinunn svarar: „Nei, bara veik heima.“ Heiða Björg virðist þó hafa hrist af sér slenið vinnunnar vegna bæði í gær og í dag. Heiða Björg var á ferðinni í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær samkvæmt upplýsingum Vísis og í dag var hún mætt í Toppstöðina í Elliðaárdal til að skrifa undir kaupsamning á Toppstöðinni. Ábendingum frá pólitískum andstæðingum Samfylkingarinnar hefur rignt inn á fréttastofuna en þeir vilja hafa fjarveru Heiðu til marks um ágreining innan Samfylkingarinnar. Vísir reyndi að ná tali af Heiðu Björgu í dag til að bera þetta undir hana en án árangurs.
Samfylkingin Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira