Borgarfulltrúi sem hlaut ekki náð fagnar endurnýjun Sunna Sæmundsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 12:03 Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er meðal þeirra sem ekki hlutu náð fyrir augum kjörnefndar. Hann segist þó sáttur við að fá að vera í aftursætinu. Það sé engum hollt að vera of lengi í pólitík. Vísir/Vilhelm Framboðslistar í Reykjavík eru að taka á sig mynd og listi Sjálfstæðisflokksins verður kynntur á morgun. Borgarfulltrúi flokksins, sem þiggur sæti aftarlega á lista og nær því ólíklega inn, fagnar endurnýjun
Miðflokkurinn birti í morgun lista yfir tólf efstu frambjóðendur en áður hafði oddvitasæti Ara Edwald einungis verið staðfest. Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, sem yfirgaf nýverið Sjálfstæðisflokkinn, er öðru sæti og Hlédís Maren, sem sóttist samkvæmt heimildum eftir einu af efstu sætunum, er í því fjórða. Miðflokkurinn er ekki með neinn borgarfulltrúa í dag en mældist með 8,5 prósenta fylgi í síðasta borgarvita Maskínu í desember. Það gæti skilað flokknum tveimur fulltrúum. Listi Sjálfstæðisflokksins verður kynntur á morgun. Kjörnefnd Varðar hefur séð um uppstillingu og samkvæmt heimildum er von á mikilli endurnýjun. Oddvitinn Hildur Björnsdóttir leiðir áfram listann en fótboltakempan Bjarni Guðjónsson vermir samkvæmt heimildum annað sæti í stað borgarfulltrúans Ragnhildar Öldu, sem er sögð færast neðar á lista. Hún er samkvæmt heimildum eini núverandi borgarfulltrúinn, fyrir utan Hildi, sem á öruggt sæti ef fylgið verður nokkurn veginn í samræmi við kannanir. Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi flokksins, hefur samkvæmt heimildum verið boðið ellefta sæti, og nær því afar ólíklega inn í borgarstjórn. Í samtali við fréttastofu segist hann þó sáttur við að verða varaborgarfulltrúi. „Ég hef fulla trú á því að þeir sem eru á undan mér á listanum verði þess megnugir að gera jafnvel mitt sæti að baráttusæti,“ segir Friðjón. Nokkuð langt er þó í land þar sem Sjálfstæðisflokkurinn mældist í síðasta borgarvita Maskínu með 31 prósenta fylgi, sem myndi skila flokknum átta fulltrúum. Samkvæmt heimildum koma þeir Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og Rúnar Freyr Gíslason, leikari og verkefnastjóri hjá Ríkisútvarpinu, inn í nokkuð örugg sæti. Þá hefur Albert Guðmundsson, formaður Varðar, einnig verið orðaður við framboðið. Friðjón fagnar endurnýjun. „Ég held að það sé bara hollt fyrir alla lista að endurnýjast að einhverju leyti. Og það er hollt fyrir fólk sem að tekur þátt í stjórnmálum að tapa sér ekki inn í því umhverfi og þeim bergmálshelli sem stjórnmálin verða oft,“ segir Friðjón, sem fer einnig ítarlega yfir málið í stöðuuppfærslu á Facebook. „Ég er búinn að vera virkur í stjórnmálum lengi en hef þar fyrir utan verið þátttakandi í atvinnulífinu, rak mitt fyrirtæki og svo framvegis. En ég finn það alveg á þessum fjórum árum að það er mjög auðvelt að gleyma sér inn í búbblu stjórnmálanna. Þannig ég held að það sé bara mjög hollt fyrir alla að vera ekki of lengi í þessu,“ segir Friðjón.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira