Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Jakob Bjarnar skrifar 24. febrúar 2026 15:11 Guðmundur Ingi segir að nú taki við formlegt samtal hans og þeirra sem fara fyrir Vori í vinstri um hugsanlegt samstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum. En þau hafa talað saman áður. vísir/ívar fannar Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar og Afstöðu, segist hafa átt í samtölum við fulltrúa Vors til vinstri um mögulegt samstarf samstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík.
Að sögn Guðmundar Inga snúast þessi samtöl um hvort slíkt samstarf geti styrkt baráttumálefni jafnaðarstefnunnar. „Stjórn Rósarinnar hefur verið upplýst um þessi samtöl og ég hef rætt við hana um þá möguleika sem kunna að felast í breiðari vinstri samstöðu. Ég hef starfað innan Samfylkingarinnar í tólf ár og lagt mitt af mörkum til stefnumótunar og baráttu í mannréttinda- og velferðarmálum. Sú vinna hefur byggt á þeirri sannfæringu að samfélagið þurfi að standa með fólki í raun og að opna þurfi dyrnar breiðar fyrir fjölbreytta þátttöku.“ Hefur gengið í gegnum djúpa lífskreppu Eins og fram hefur komið sló í brýnu milli Guðmundar Inga og kjörstjórnar Samfylkingarinnar en hún ætlar honum ekki sæti á lista þó að honum hafi vegnað ágætlega í prófkjöri flokksins. „Mitt eigið líf hefur kennt mér hvað umbreyting getur skipt miklu máli. Ég fór ungur í gegnum djúpa lífskreppu og þurfti að byggja mig upp frá grunni. Í því ferli leitaði ég aftur í barnatrúna mína og fann þar styrk sem hefur fylgt mér síðan. Sú reynsla hefur mótað sýn mína á ábyrgð, velferð og mikilvægi þess að samfélagið gefi iðrandi fólki raunveruleg annað tækifæri.“ Formlegt samtal hefst núna Guðmundur Ingi segir auk þess að hans trú sé sú að fólk með lífsreynslu eigi fullt erindi í stjórnmálin. Lýðræði verði sterkara þegar fleiri raddir fái að heyrast. „Ég mun ekki fara nánar út í einstök atriði á meðan formleg ferli annarra aðila standa yfir. Ef niðurstaða næst í þeim samtölum sem nú eiga sér stað mun Rósin taka afstöðu og kynna hana með formlegum hætti þegar þar að kemur. Markmið mitt er að leggja mitt af mörkum til sterkrar og trúverðugrar vinstri hreyfingar sem stendur með fólki í verki.“ Guðmundur Ingi segir að nú hefjist formlegt samtal en þessir aðilar hafi þó talað saman áður.
Samfylkingin Vor til vinstri Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Guðmundur Ingi vill fara fram fyrir Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga, ætlar að gefa kost á sér í 3. til 4. sæti hjá Samfylkingunni i í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Þetta staðfestir Guðmundur Ingi í samtali við fréttastofu. 16. október 2024 13:48 Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir Björk Vilhelmsdóttur, formann uppstillingarnefndar í borginni, hafa farið með ósannindi í samtali við blaðamann. Guðmundur Ingi er nú í viðræðum við önnur framboð í borginni. 19. febrúar 2026 15:17 Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga. 6. janúar 2026 14:47 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira
Guðmundur Ingi vill fara fram fyrir Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga, ætlar að gefa kost á sér í 3. til 4. sæti hjá Samfylkingunni i í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Þetta staðfestir Guðmundur Ingi í samtali við fréttastofu. 16. október 2024 13:48
Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir Björk Vilhelmsdóttur, formann uppstillingarnefndar í borginni, hafa farið með ósannindi í samtali við blaðamann. Guðmundur Ingi er nú í viðræðum við önnur framboð í borginni. 19. febrúar 2026 15:17
Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga. 6. janúar 2026 14:47