Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Lovísa Arnardóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 24. febrúar 2026 09:11 Reynir Freyr telur að gott væri að kaupa minni skjólur fyrir minni þyrlur. Þær séu afkastameiri en, til dæmis, stórar þyrlur Landhelgisgæslunnar. Aðsend/Vísir/Vilhelm og Landhelgisgæslan Reynir Freyr Pétursson, þyrluflugstjóri hjá Heliair, vill að keyptar séu skjólur og samið við þyrlufyrirtæki til að bregðast við þegar upp koma gróðureldar. Minni skjólur á minni þyrlum séu töluvert afkastameiri en stór skjóla á stórum þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Með slíkri aðstoð væri einnig hægt að koma í veg fyrir að allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sé bundið í eitt verkefni, eins og gróðurelda, klukkutímum saman. Hann segir að brunann við Elliðavatn hefði verið hægt að slökkva á mun styttri tíma með réttum búnaði. „Okkur, sem erum í þyrlurekstri, hefur alltaf þótt skjóta skökku við að nota rándýr björgunartæki í svona verkefni,“ segir Reynir Freyr og á þá við bæði þyrlur Landhelgisgæslunnar og bíla og búnað slökkviliðsins. Hann telur að það sé vel hægt að nota þyrlur, eins og hann flýgur í útsýnisflugi, í svona verkefni. Það sé gert í Evrópu til dæmis. Hann segist oft hafa velt því fyrir sér hvort hann eigi að kaupa skjólu til að eiga sjálfur. Þær kosti um þrjár milljónir fyrir þyrlurnar sem hann flýgur. „En það sem þetta strandar alltaf á er hver á að borga fyrir hlutina,“ segir hann og að það hafi alltaf verið viðkvæðið hjá stjórnvöldum að greiða ekki öðrum fyrir slík verkefni. „Það er því þeir hafa alltaf getað notað Landhelgisgæsluna. Það er til svona búnaður hjá Landhelgisgæslunni,“ segir Reynir Freyr. Skjólur er hægt að festa við þyrlur og fylla svo að vatni til að hella yfir bruna. Hver skjóla í eigu Landhelgisgæslunnar ber um tvö tonn af vatni. Hér að neðan má sjá myndband af notkun skjólu við að slökkva gróðurelda við eldstöðvar eldgoss við Litla-Hrút í júlí 2023. Hann segir einungis tvær þyrlur til notkunar hjá Landhelgisgæslunni eins og er og verði næsta árið vegna viðhalds á öðrum þyrlum. Að hans mati sé ótækt að gera ráð fyrir því að flugtíma verði varið í að slökkva gróðurelda með þessum björgunartækjum sem þyrlurnar eru. „Ef við hefðum sent alla sjúkrabíla höfuðborgarsvæðisins þarna upp eftir með vatnsbrúsa hefði það þótt skrítið. Þannig að ég myndi vilja sjá að tryggingafélögin og skógræktarfélögin myndu sameinast um að koma upp svona búnaði. Þetta er bara spurning hvenær það verður tjón.“ Alvarlegt ef upp kemur eldur í sumarhúsabyggð Reynir Freyr birti færslu á Facebook-síðu sinni um málið en þar skilur til dæmis Einar Þór Strand, slökkviliðsstjóri í Stykkishólmi, eftir athugasemd um málið. Reynir Freyr segir þetta búið að vera honum hugleikið og sérstaklega í tengslum við mögulega bruna í sumarhúsabyggð víða um land. „Ef það kemur þurrkur og það verður eldur getur það orðið vesen.“ Reynir Freyr segir einu skjóluna sem sé til ekki henta fyrir minni þyrlur. Þær geti borið skjólur með 800 til 1.100 lítra og geti líklega afkastað meira á klukkutíma en ein stór þyrla. „Þær eru fljótari í förum og geta sótt vatn í minni vatnsból.“ Reynir Freyr fór sjálfur á vettvang gróðureldanna við Elliðavatn í fyrradag og segir að ef minni þyrlurnar hefðu verið til taks með skjólur hefðu þær getað, til dæmis, sótt vatn í Elliðaár og hefðu líklega lokið verkefninu á um klukkutíma. Hann telur nauðsynlegt að þessi mál séu skoðuð. Það séu til einhverjir sjóðir sem væri hægt að sækja um í til að kaupa slíka skjólu og svo væru eflaust tryggingafélög sem kæmu að því. „Ef einn sumarbústaður brennur er það strax orðið mun dýrara en kostnaðurinn við þetta.“ Bæði fyrirtækin til í þjónustusamning Hann segir tvö þyrlufyrirtæki á Íslandi, Heliair og Norðurflug, og þau hafi átt samtal um að vera bæði með samning við ríkið, sem gæti verið sams konar, um að sinna slíkri þjónustu. „En það hefur aldrei verið stigið alla leið með það.“ Hann segist hafa átt þessi samtöl við stjórnvöld en ekki frá því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var dómsmálaráðherra, sem var frá 2019 til 2021. „En þessi bruni vekur mann aðeins upp,“ segir Reynir Freyr. Hann segist hafa átt svona búnað fyrir um 20 árum sem hafi verið notaður þegar upp kom alvarlegur sinueldur vestur á Mýrum 2006. „Þá sást alveg hvað þetta er afkastamikið og gerir mikið. Sá búnaður er held ég ekki lengur til, er orðinn úreltur, en það hefur aldrei verið tekið þetta skref síðan.“ Hann segist hafa rætt þetta við fjölda aðila, til dæmis Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, sem hafi sagst vilja nota þyrlufyrirtækin í svona verkefni en vilji alls ekki greiða reikninginn. Það þyrfti því að vera einhvers konar samstarfssamningur við ríki eða sveitarfélög um að greiða það. Þekkist í nágrannalöndum Hann segir einkafyrirtæki sinna þessu í Svíþjóð og Noregi og greitt fyrir þá daga sem þau eru á bið eða „standby“. Hann segir ekkert endilega þörf á því hér, það væri hægt að byrja á því að kaupa búnaðinn og svo væri hægt að semja við þyrlufyrirtækin um að vera til taks með stuttum fyrirvara. „Þannig að þetta sé ekki bara Landhelgisgæslan og vélarnar þeirra eru í öðrum verkefnum eða ekki tiltækar.“
Gróðureldar Slökkvilið Landhelgisgæslan Gróðureldar á Íslandi Fréttir af flugi Heiðmörk Reykjavík Kópavogur Tengdar fréttir Flýgur þyrlunni á myndbandinu og braut engar reglur Þyrluflugmaður segir að drónaflugmenn hafi verið að fljúga drónum sínum alltof hátt við gosstöðvarnar síðustu daga, og það skapi hættu fyrir þyrlur. Drónaflugmaður segir að það séu pottþétt einhverjir drónaflugmenn sem fljúgi of hátt, en það sé aðallega almenningur með dróna. 29. ágúst 2024 11:09 Blöskrar græðgi á kostnað gæða Flugrekstrarstjóri HeliAir Iceland segir atvik þar sem þyrla lenti á malarbílastæði og olli að líkindum skemmdum á bíl dæmi um það þegar menn hugsi aðeins um gróða en ekki gæði. 8. ágúst 2024 22:02 Bjóða bændum þyrluflug í smalamennsku fyrir slikk Þyrluflugfélagið HeliAir Iceland hefur boðist til að létta bændum við Eyjafjörð smalamennskuna þetta haustið. Bændum býðst þyrluflug upp á fjöll og lengst inn í dali Tröllaskaga fyrir tvöþúsund krónur túrinn á mann. 4. september 2024 12:02 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Sjá meira
Flýgur þyrlunni á myndbandinu og braut engar reglur Þyrluflugmaður segir að drónaflugmenn hafi verið að fljúga drónum sínum alltof hátt við gosstöðvarnar síðustu daga, og það skapi hættu fyrir þyrlur. Drónaflugmaður segir að það séu pottþétt einhverjir drónaflugmenn sem fljúgi of hátt, en það sé aðallega almenningur með dróna. 29. ágúst 2024 11:09
Blöskrar græðgi á kostnað gæða Flugrekstrarstjóri HeliAir Iceland segir atvik þar sem þyrla lenti á malarbílastæði og olli að líkindum skemmdum á bíl dæmi um það þegar menn hugsi aðeins um gróða en ekki gæði. 8. ágúst 2024 22:02
Bjóða bændum þyrluflug í smalamennsku fyrir slikk Þyrluflugfélagið HeliAir Iceland hefur boðist til að létta bændum við Eyjafjörð smalamennskuna þetta haustið. Bændum býðst þyrluflug upp á fjöll og lengst inn í dali Tröllaskaga fyrir tvöþúsund krónur túrinn á mann. 4. september 2024 12:02