Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 11:51 Líf Magneudóttir og Finnur Ricart vilja bæði fyrsta sætið. Samsett Forval Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor stendur nú yfir og lýkur klukkan fimm á morgun. Í morgun höfðu 27 prósent á kjörskrá greitt atkvæði en fjölgað hefur töluvert í flokknum undanfarnar vikur.
Átta berjast um þrjú efstu sæti Vinstri grænna en þau munu bjóða fram sameiginlega lista í borginni með Vori til vinstri. Líf Magneudóttir, núverandi oddviti flokksins í Reykjavík, og Finnur Ricart Andrason vilja oddvitasætið. Hann var oddviti Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðustu Alþingiskosningunum. Hlynur Már Ragnheiðarson, sjúkraliðanemi, gefur kost á sér í fyrsta til þriðja sæti en Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi, og Auður Alfífa Ketilsdóttir, smíðakennari, 2. sæti, sækjast eftir öðru sætinu. Þá vilja Riittaa Anne Maarit Kaipainen, rekstrarstjóri, og Steinar Harðarson, vinnuverndarráðgjafi og athafnastjóri, það þriðja. Klukkan hálf tíu í morgun höfðu alls 695 greitt atkvæði í forvalinu sem gerir um 27 prósenta kjörsókn. Forvalið stendur til klukkan fimm á morgun. Töluvert hefur fjölgað í flokknum en síðustu sex vikur hafa tæplega fjögur hundruð manns skráð sig í félagið og hefur því fjölgað um tæplega tuttugu prósent. Félagar eru nú um 2500. Vinstri grænir og Vor til vinstri hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista og mun Sanna Magdalena Mörtudóttir leiða listann. Sá sem hlýtur kjör sem oddviti Vinstri grænna mun því vera í öðru sæti listans.
Vinstri græn Vor til vinstri Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Tengdar fréttir VG og Sanna sameina krafta sína Vinstri græn í Reykjavík og Vor til vinstri munu hafa myndað framboðsbandalag fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi mun leiða listann. 18. janúar 2026 17:40 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira
VG og Sanna sameina krafta sína Vinstri græn í Reykjavík og Vor til vinstri munu hafa myndað framboðsbandalag fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi mun leiða listann. 18. janúar 2026 17:40