Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. febrúar 2026 23:16 Finni Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kukl. vísir/lýður valberg Stærsta tækjaleigja landsins hefur neyðst til að draga saman seglin vegna ástandsins í kvikmyndageiranum. Mikill samdráttur hefur verið á milli ára í innlendri og erlendri kvikmyndagerð. Framkvæmdastjóri Kukl kallar eftir fyrirsjáanleika frá stjórnvöldum. „
Ég hef mestar áhyggjur í raun og veru af fólki í bransanum, hvernig það nær endum saman ef það fer ekki eitthvað að gerast,“ sagði Finni Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kukl í samtali við fréttastofu um ástandið í kvikmyndageiranum en innslagið má sjá hér fyrir neðan. Greint var frá því í gær að hálfgert neyðarástand ríki í kvikmyndageiranum hér á landi. Reynsluboltar lýstu frosti, flótta úr greininni og áratuga afturför í samtali við fréttastofu. Það hefur verið harðlega gagnrýnt að framlög til kvikmyndasjóðs hafi dregist saman. Kukl er eitt af þeim fyrirtækjum sem hafa þurft að draga saman vegna ástandsins í kvikmyndageiranum en til að mynda voru skrifstofur fyrirtækisins færðar inn á tækjalagerinn. Kukl er stærsta tækjaleiga landsins og þjónustar bæði innlend og stór erlend verkefni. Erlend kvikmyndaframleiðsla hefur eins og innlend framleiðsla dregist saman undanfarið. „Við þurfum aðeins að grípa inn í og skera niður, kreista okkur saman og þétta okkur. Við þurfum að minnka húsnæði og líta á alla kostnaðarliði. Við þurfum að sjá hvað við getum gert til að skrimta þangað til eitthvað fer að gerast. Hér erum við í raun og veru að stúka af fyrir nýja leigjendur og þetta er í rauninni rými sem við höfðum undir okkur en þetta er partur af þessum samdrætti. Við þurfum að leigja þetta öðrum aðilum.“ Hnökrar hafi verið á endurgreiðslukerfinu hér á landi. Árið 2022 var samþykkt að greiða 35 prósenta endurgreiðslu til verkefna yfir ákveðnri stærð sem eru framleidd hér á landi. Að sögn fagfólks eru þessar endurgreiðslur undirstaða þess að stór verkefni komi hingað til landsins. „Það þarf að hafa eitthvað plan í þessum bransa og það á þá við það sem tengist kvikmyndasjóði, fjárframlögum í kvikmyndasjóð og fyrirsjáanleika í endurgreiðslunni sem er náttúrulega lykillinn að velgengni bransans á Íslandi. Með nýrri ríkisstjórn þá kemur alltaf eitthvað hikst í tölurnar og framtíðina.“ Hann segir ýmsar aðrar ástæður fyrir fækkun erlendra verkefna og tekur fram að iðnaðurinn úti hafi ekki náð sér á strik eftir verkföll í Hollywood fyrir rúmum tveimur árum. Hvernig er útlitið fyrir þetta ár, er eitthvað í hendi? „Nei, það er lítið í hendi. Síðustu ár hafa verið svolítið sveiflukennd. Fjármagnið er minna. Það er samdráttur, það er alveg greinilegur og stór samdráttur á milli ára.“
Kvikmyndagerð á Íslandi Menning Bíó og sjónvarp Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira