Guðmundi Inga hafnað Jakob Bjarnar skrifar 19. febrúar 2026 13:10 Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu, félag aðstandenda fanga, hefur talað fjálglega um að hann sé litinn hornauga vegna bakgrunns síns og hefur Landsmálafélagið Rósin sagt sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík. vísir/vilhelm Björk Vilhelmsdóttir formaður uppstillinganefndar Samfylkingarinnar segir að ekki hafi tekist að myndast traust milli flokksins og Guðmundar Inga Þóroddssonar frambjóðanda.
Guðmundur Ingi hefur verið órór eftir að hann náði ekki í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík bindandi sæti. Nú er svo komið að tekin hefur verið ákvörðun um að hann fái ekki 7. sætið, en hann hafnaði einmitt í því í prófkjörinu. „Nei, því miður. Guðmundur er ekki að fá sæti á okkar lista. Þetta mál stendur þannig að það er einhugur í uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar sem er að bjóða ekki fólki sem hefur í hótunum eða stendur í viðtölum við aðra flokka,“ segir Björk í samtali við Vísi. Björk segir að slík vinnubrögð séu ekki að skapi Samfylkingarinnar. En ef hann hefði nú ekki ólmast svona eins og raun ber vitni, hefði hann þá fengið 7. sætið? „Það getur vel verið,“ segir Björk og segir að það megi koma skýrt fram að þau í uppstillingarnefnd hafi nákvæmlega ekkert á móti Guðmundi Inga né hans bakgrunni. „Hann hefur talað um að við höfum hafnað hans málefnum eða persónu, svo er ekki. Við teljum þvert á móti hans málefni mjög góð. Við erum hins vegar að hafna þeim vinnubrögðum sem hafa opinberast undanfarið sem eru með þeim hætti að ekki hefur myndast traust milli okkar og hans.“ Framboðslistinn verður kynntur eftir viku og þá mun koma á daginn hvernig hann raðast. Björk segir úr mörgum að velja en nú sé lögð áhersla á að hafa listann fjölbreyttan, sigurstranglegan og að frambjóðendur komi úr sem flestum hverfum. „Með mismunandi reynslu og það er það sem við erum að gera,“ segir Björk.
Reykjavík Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, segist í sínu lífi hafa þurft að þola verri og harkalegri skelli en að ná ekki settu markmiði í forvali Samfylkingarinnar sem lauk í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti á lista flokksins en endaði í því sjöunda með 1700 atkvæði. 25. janúar 2026 14:16 Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga. 6. janúar 2026 14:47 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira
„Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, segist í sínu lífi hafa þurft að þola verri og harkalegri skelli en að ná ekki settu markmiði í forvali Samfylkingarinnar sem lauk í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti á lista flokksins en endaði í því sjöunda með 1700 atkvæði. 25. janúar 2026 14:16
Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga. 6. janúar 2026 14:47