Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Lovísa Arnardóttir skrifar 17. febrúar 2026 14:41 Beitir segir málflutning Miðflokksmanna hafa heillað sig og óskar eftir sæti á lista í Kópavogi. Aðsend Beitir Ólafsson, fyrrverandi markvörður KR og HK, hefur óskað eftir sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Í tilkynningu frá Beiti segir hann að flokkurinn hafi skapað sér sess með orðræðu sem hann tengi við. „
Þeir hafa talað um málefnin umbúðarlaust, sett þau í hendur almennings til að vega og meta, skapað umræðu og umhugsun. Sum hver auðmeltanlegri en önnur, opnað á pólitíska innsýn í samfélagið í þágu almennings og oftar en ekki synt á móti straumnum,“ segir Beitir í tilkynningu sinni. Hann segir áhuga sinn á pólitík hafa vaxið til muna eftir því sem hann hefur orðið eldri. „Ég bý að þeim forréttindum að alast upp og halda úti fjölskyldu hér í Kópavogi. Ég starfa í einkageiranum sem verktaki og er fyrrverandi knattspyrnumaður; ég er fyrst og fremst sonur, faðir, eiginmaður og hundaeigandi,“ segir Beitir. Hann segir sveitarfélagið eiga að skapa sín eigin grunngildi og að ákveðin gildi í þágu bæjarbúa hafi tapast þegar kemur að grunnþjónustu. „Þar skipa skipulagsmál stóran sess, hvort sem það er þétting byggðar, uppboð á lóðum sem skilar sér í hækkun fasteignaverðs, eða kostnaðarsöm Borgarlína með tilheyrandi aðför að einkabílnum,“ segir Beitir. Hann segir þörf á að efla tómstundir, æskulýð og kirkju og að leikskóli þurfi að virka fyrir alla. „Ánægja og líðan kennara hvort sem það er í skóla eða leikskóla skiptir sköpun upp á gott starfsumhverfi og til að búa til sem besta samfélag utan um börnin sem þar dvelja. Foreldrar þurfa að geta stundað sína vinnu á meðan barnið er í góðum höndum. Leikskóli og skóli eru án efa hluti af mikilvægustu stofnunum sem sveitarfélag rekur og þær má ekki vanrækja. Koma þarf á aðhaldi og aga innan veggja grunnskólanna, auka mátt, úrræði og stuðning við kennara og byggja á góðu samstarfi með foreldrum,“ segir Beitir.
Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira