Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 16. febrúar 2026 12:05 Sköpunargleðin fékk að njóta sín hjá bakarameisturum Brauð & Co en bolla með sítrónukremsfyllingu og brenndum marengstoppi er einkar vinsæl þetta árið. Aðsend Landsmenn virðast sérlega hungraðir í bollur í ár ef marka má söluaukningu á bolludaginn hjá handverksbakaríinu Brauð & Co. Þeir virðast einnig vera mjög opnir fyrir tilbreytingu þetta árið því óhefðbundin bolla hefur verið uppseld síðan á fimmtudag en það er bolla með sérstakri sítrónufyllingu og fallega gylltum margenstoppi.
Viðar Ottó Brink, sölu- og markaðsstjóri Brauð & co., segist finna fyrir stórauknum bolluáhuga þetta árið. „Hann er stærri hjá okkur, við erum að sjá töluverða aukningu hjá okkur, svona fimmtán prósent aukningu frá því í fyrra.“ Það er sannlega nóg að gera hjá starfsfólki sem er í óðaönn að útbúa og afgreiða bollur. Hér má sjá bolluna með sítrónufyllingu og gylltum marengstoppi í allri sinni dýrð.Aðsend „Það er búið að vera mjög mikið að gera, sérstaklega snemma í morgun. Þetta byrjaði strax klukkan sex í morgun þegar fyrirtækin komu til okkar að sækja pantanir. Helgin fer meira í fjölskyldur og bollukaffi heima hjá ömmu og afa og fólk er að kaupa fyrir sig og vini en mánudagurinn sjálfur fer rosalega mikið í pantanir.“ Hin síðustu ár hefur verið boðið upp á bollur með öðruvísi og framandi bragðtegundum. „Við höfum alltaf boðið upp á þetta klassíska, vatnsdeigsbolla með súkkulaði, sultu og rjóma og karmellubollu, það er mjög öruggt, en svo höfum við verið að leika okkur líka með tvær þrjár aðrar tegundir. Við sjálf erum með fimm tegundir í ár.“ Landsmenn virðast taka nýjungum opnum örmum í ár. Screenshot „Til dæmis Juzu Lemon bollan. Það er sítrónufylling inni í henni og svo erum við með marengs brenndan á toppnum. Þetta er fyllt bolla. Þetta er bolla sem við bökum og svo þurfum við að sprauta inn í hana sítrónufyllingunni. Við byrjuðum að selja hana á fimmtudaginn og hún seldist upp alla dagana. Fólk er tilbúið að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt.“ Hann segir að bakararnir fái mikla ánægju af því að leyfa sköpunargleðinni að ráða för. „Þetta eru náttúrulega átta bakarí og gera þetta svona; allar fyllingar og sultur og allt, þetta er allt handverk og gert frá grunni. Fyrir nokkrum árum síðan þá var þetta mikið bras hjá okkur og erfitt fyrir okkur að gera þetta en í dag er þetta bara gaman. Það er bara „high five“ og allir brosandi og stemning.“
Menning Bolludagur Tengdar fréttir Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Bakaríið Brikk verður opnað á óhefðbundnum stað í Skeifunni í dag, inni í útvistarvöruversluninni Zo-on. Fyrirtækin segjast prófa nýja nálgun þar sem viðskiptavinir geti sameinað verslunarferð og kaffihúsastund. 13. febrúar 2026 13:18 Glæsilegustu bollur landsins ruku út Stjörnubakarinn Elenora Rós seldi upp gríðarlegt magn af girnilegum bollum í einhverju rosalegasta bolluteiti ársins í Höfuðstöðinni í gær. Elenora, sem er búsett í London, var algjörlega í skýjunum með viðburðinn. 9. febrúar 2026 13:01 Vatnsdeigsbollur með Dúbaí-fyllingu: „Þið verðið að prófa“ Rakel María Hjaltadóttir, hlaupadrottning og ofurskvísa, bakaði girnilegar vatnsdeigsbollur með fyllingu innblásinni af hinu vinsæla Dúbaí-súkkulaði. Bolludagurinn verður haldinn hátíðlegur mánudaginn 3. mars næstkomandi, og því tilvalið að bjóða í bollukaffi um helgina. 27. febrúar 2025 13:31 Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Bakaríið Brikk verður opnað á óhefðbundnum stað í Skeifunni í dag, inni í útvistarvöruversluninni Zo-on. Fyrirtækin segjast prófa nýja nálgun þar sem viðskiptavinir geti sameinað verslunarferð og kaffihúsastund. 13. febrúar 2026 13:18
Glæsilegustu bollur landsins ruku út Stjörnubakarinn Elenora Rós seldi upp gríðarlegt magn af girnilegum bollum í einhverju rosalegasta bolluteiti ársins í Höfuðstöðinni í gær. Elenora, sem er búsett í London, var algjörlega í skýjunum með viðburðinn. 9. febrúar 2026 13:01
Vatnsdeigsbollur með Dúbaí-fyllingu: „Þið verðið að prófa“ Rakel María Hjaltadóttir, hlaupadrottning og ofurskvísa, bakaði girnilegar vatnsdeigsbollur með fyllingu innblásinni af hinu vinsæla Dúbaí-súkkulaði. Bolludagurinn verður haldinn hátíðlegur mánudaginn 3. mars næstkomandi, og því tilvalið að bjóða í bollukaffi um helgina. 27. febrúar 2025 13:31