„Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Árni Sæberg skrifar 4. febrúar 2026 13:55 Vilhjálmur er ekki ánægður með „hótanir“ þeirra Ásgeirs og Þórarins. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Birgisson er ekki ánægður með skilaboð Seðlabanka Íslands til launafólks en seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri sögðu í morgun að bankinn myndi ekki hika við að hækka stýrivexti ef laun hækka. Sérstaklega var minnst á brugðist yrði við ef forsenduákvæði kjarasamninga yrði beitt í september. Það mælir fyrir um að rifta megi samningum ef verðbólga mælist yfir fimm prósentum í ágúst. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp,“ segir Vilhjálmur.
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað á síðasta vaxtaákvörðunarfundi að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25 prósentum, þrátt fyrir nokkuð mikla aukningu verðbólgu í síðustu mælingu. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og staðgengill formanns peningastefnunefndar, kynntu yfirlýsingu nefndarinnar í morgun og sátu svo fyrir svörum. Kynninguna má sjá í spilaranum hér að neðan, auk kynningar Karenar Áslaugar Vignisdóttur, framkvæmdastjóra sviðs hagfræði og peningastefnu og aðalhagfræðings bankans á nýtti útgáfu Peningamála. Meðal þess sem kom fram í máli þeirra Ásgeirs og Þórarins var að nefndin hefði talið að ekki væri þörf á að hækka vexti þrátt fyrir aukningu verðbólgu í síðustu mælingu. Verðbólguvæntingar til langs tíma hefðu ekki hækkað og merki væru um að hagkerfið væri að kólna. „Hins vegar er alveg skýrt, og við teljum það koma fram í síðustu setningunni þarna, að við munum bregðast við. Það er alveg ljóst að ef þetta fer að vinda upp á sig, ef þetta veldur annarrar gráðu áhrifum eins og Þórarinn nefndi, þá munum við bregðast við því. Það er alveg skýrt,“ sagði Ásgeir til að mynda. Ræddu hækkun Þórarinn sagði að peningastefnunefnd hefði rætt möguleikann á vaxtahækkun en allir nefndarmenn studdu tillögu um að halda vöxtum óbreyttum. „Ef þetta fer á verri veg en við erum að gera ráð fyrir, ef til dæmis þessi annarrar umferðar áhrif ágerast, ef við förum að sjá einhverjar hreyfingar á vinnumarkaði í launum, til dæmis að þessi forsenduákvæði í haust fara að virkjast, þá munum við ekki hika við að bregðast við með hækkun vaxta. Ég held að það sé enginn vafi um það.“ Tónninn í hótunarstíl „Ég hef oft fylgst með kynningum peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands en sjaldan, ef nokkru sinni, upplifað jafn skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar og á fundinum í dag. Verkalýðshreyfingin, launahækkanir og kjarasamningar voru nefnd aftur og aftur og tónninn var ekki uppbyggilegur heldur augljóslega í hótunarstíl. Skilaboðin voru einföld: ef forsendur kjarasamninga standist ekki í september og ef verkalýðshreyfingin neyðist til að segja upp samningum muni Seðlabankinn bregðast við með verulegum stýrivaxtahækkunum. Það var ekki annað að skilja en að launafólki væri beinlínis hótað, eins og enginn væri morgundagurinn,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, um kynninguna á Facebook. Samningar um hóflega launahækkanir hafi verið gerðir af ábyrgð og í þeirri trú að þeir myndu skapa skilyrði fyrir hjöðnun verðbólgu og í framhaldinu lækkun vaxta, sem hafi verið grundvallarforsenda fyrir stöðugleika heimila og fyrirtækja. „Samningarnir voru gerðir gegn því að ríki, sveitarfélög, verslun og þjónusta myndu halda aftur af skattahækkunum, gjaldskrárhækkunum og verðlagshækkunum, einmitt til að styðja við þessa vegferð að lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Sú forsenda var svikin. Það er staðreynd.“ Aðrir hópar fengið meiri hækkanir Launaskrið sé alls ekki verkalýðshreyfingunni um að kenna. Í breiðfylkingunni svokölluðu hafi verið samið um fjögurra prósenta kostnaðarauka, ekki aðeins á almennum vinnumarkaði heldur einnig við ríki og sveitarfélög. Hins vegar liggi fyrir að aðrir hópar hafi samið um mun meiri hækkanir og ekki tekið þátt í þessari sameiginlegu vegferð. Launavísitala ríkisstarfsmanna hafi hækkað um 11,3 prósent og launavísitala starfsmanna sveitarfélaga um 11,7 prósent. Rétt sé að taka skýrt fram að verkafólk hjá ríki og sveitarfélögum hafi alls ekki fengið slíkar hækkanir, þrátt fyrir að bera byrðarnar af verðbólgu og vaxtahækkunum eins og aðrir. „Við í verkalýðshreyfingunni vorum svikin, og það illilega. Við lögðum af stað í þeirri trú að allir myndu axla ábyrgð og róa í sömu átt til að ná niður verðbólgu og skapa rými fyrir vaxtalækkanir. Það hafa ríki, sveitarfélög og verslun og þjónusta ekki gert. Hátt vaxtastig leikur fyrirtæki og heimili afar illa en eins og svo oft áður er það verkalýðshreyfingin sem fær sparkið. Á sama tíma tipplar Seðlabankinn á tánum í kringum stjórnvöld, sveitarfélög, verslun og þjónustu, og ekki síst fjármálakerfið sem kvartaði hástöfum á fundinum í dag yfir því að stýrivextir hefðu ekki verið hækkaðir.“ Vert er að taka fram að fulltrúar bankanna og verðbréfafyrirtækja á fundi Seðlabankans í morgun veltu helst vöngum yfir því hvers vegna tónn framsýnnar leiðsagnar peningastefnunefndar hefði ekki verið harðari, ekki hvers vegna vextir voru ekki hækkaðir. Lágtekjufólk verði fyrir ofbeldi Að lokum segir Vilhjálmur að mat hans á stöðunn sé einfalt og afdráttarlaust. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp. Það er ekki hægt að horfa upp á það ofbeldi sem lágtekjufólk á almennum vinnumarkaði og hjá ríki og sveitarfélögum hefur þurft að þola. Launafólk hefur staðið við sitt, sýnt ábyrgð og lagt sitt af mörkum til þess að skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Á móti hafa loforð verið svikin, kostnaður hlaðist upp, skuldir vaxið og byrðar lagðar á herðar þeirra sem minnst mega sín. Við munum ekki samþykkja að lágtekjufólk sé notað sem höggpúði í baráttu gegn verðbólgu sem aðrir bera meginábyrgð á. Ef samfélagið ætlar ekki að standa við sinn hluta samningsins þá er einfaldlega ekki grundvöllur fyrir því að verkalýðshreyfingin geri það áfram.“
Seðlabankinn Verðlag Efnahagsmál Stéttarfélög Kjaramál Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Sjá meira