Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 18:15 Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld. Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir að tilkynning barst frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. Við förum ítarlega yfir málið í kvöldfréttum. Við verðum í beinni frá bráðamóttöku Landspítalans þar sem minnst átta hafa smitast af berklum. Við ræðum við lækni um stöðuna. Sonur norsku krónprinsessunnar neitaði fyrir dómi í dag að hafa framið alvarlegustu ofbeldisbrotin sem hann er ákærður fyrir eins og nauðgun og líkamsárás. Sérfræðingur um konungleg málefni segir hneykslið alvarlegt. Krúnan sjálf gæti verið í hættu. Þá förum við yfir efnahagsmálin. Í fyrramálið mun peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynna ákvörðun sína. Hagfræðingur sem fréttastofa ræðir við segir að það sé langt í að vextir verði lækkaðir að nýju. Þá verðum við í beinni útsendingu úr ráðhúsinu með borgarstjóra sem skýrir fyrirætlanir um að gera strætó endurgjaldslausan fyrir börn. Við sýnum frá skoplegu atviki sem átti sér stað í þingsal þegar grínpersóna úr Fóstbræðrum kom þingheimi til að skella duglega upp úr. Í sportpakkanum verður rætt við formann HSÍ sem segir vinnu nú þegar hafna til að koma í veg fyrir annað eins áhorfendaleysi á úrslitahelgi næsta stórmóts, þegar strákarnir okkar fara á HM í Þýskalandi. Þá verðum við á menningarlegum nótum í Íslandi í dag. Glænýja íslenska leikverkið Ormstunga hefur fengið góðar undirtektir síðan það var frumsýnt fyrir rúmlega viku. Um er að ræða óperu, rapp, söngleik sem byggir á Gunnlaugs sögu ormstungu. Ungt fólk á þrítugsaldri er í algjöru aðalhlutverki í uppsetningunni en við ræðum við ungu höfundana sem strituðu í sex ár til að gera þetta að raunveruleika. Við ræðum einnig við unga leikara í þremur stærstu hlutverkunum og Jóa Pé sem var tónlistarstjóri.
Kvöldfréttir Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira