Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 21:57 Íslendingar lesa helst fréttir á netinu eða samfélagsmiðlum. Getty Þriðjungi íbúa á Norðurlöndunum á aldrinum 16 til 44 ára finnst erfitt að fylgjast með fréttum. Íslendingar hafa almennt meiri aðgang að fréttum en íbúar á hinum Norðurlöndunum.
Þetta segir í samnorrænni rannsókn um fjölmiðla- og samfélagsmiðlanotkun, fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni. Þar voru Íslendingar, Norðmenn, Svíar, Danir og Finnar spurðir út í viðhorf sitt til fjölmiðla og samfélagsmiðla en markmiðið var að fá nánari upplýsingar um miðlalæsi þeirra. Í niðurstöðunum kemur fram að meiri munur er á milli aldurshópa heldur en milli landanna. Það sem einkennir Íslendinga er að þeir eru líklegri til að hlusta á útvarp á meðan dagblaðalestur fer minnkandi. Þjóðin er ólíklegri en íbúar hinna fjögurra landanna til að vilja borga fyrir áskrift að fréttamiðlum. Íslendingar hafa nú meiri aðgang að fréttum þar sem fréttamiðlar eru gjaldfrjálsir. Langflestir neyta frétta í gegnum fréttamiðla á netinu eða á samfélagsmiðlum, þá helst á Facebook. Íslendingar skera sig úr hópnum með mikilli notkun Facebook og Messenger í stað Whatsapp sem er vinsælla á hinum Norðurlöndunum. Meira en helmingur íbúa á Norðurlöndunum notar samfélagsmiðla daglega til að fylgjast með fréttum. Miðlalæsi ábótavant Miðlalæsi og skilningi á mikilvægi fjölmiðla hérlendis er ábótavant. Fjöldi þátttakenda gat ekki talið upp hver væri aðalfjármögnun helstu fjölmiðla né hvaða fjölmiðlar hafa sérstakt almannaþjónustuhlutverk. „Könnunin sýnir að Íslendingar telja að fréttaþættir í sjónvarpi gefa ekki hlutlæga mynd af fréttnæmum viðburðum hér á landi og erlendis. Enn fremur telur fólk að í slíkum þáttum komi fram nægilega fjölbreytt sjónarmið og telja síður að þeir séu til þess fallnir að styrkja tjáningarfrelsi og lýðræði,“ segir í umfjöllun Fjölmiðlanefndar um rannsóknina. Í kafla um Ísland í rannsókninni segir að þörf sé á aukinni kennslu í miðlalæsi, bæði fyrir börn í grunnskólum en einnig fyrir fólk eldra en 65 ára. Lesa má rannsóknina í heild hér.
Fjölmiðlar Vísindi Læsi Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira