Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða Sigfús Aðalsteinsson, Hlynur Áskelsson og Baldur Borgþórsson skrifa 2. febrúar 2026 21:01 Jafn ótrúlega og það kann að hljóma, má leiða líkum að því að spara megi samfélaginu tugi milljarða árlega með því einu að gera Strætó gjaldfrjálsan. Hvernig má það vera? Svarið er einfalt - Með því að sleppa Borgarlínu. Hvernig? Reikningsdæmið er ekki ýkja flókið: Lágmarkskostnaður við uppbyggingu sjálfrar línunnar er áætlaður kr. 136 milljarðar. Gæti farið í 250 milljarða. Eða 350 milljarða. Eða 1000 milljarða? Hver veit? Það er einfaldlega ekkert þak á kostnaði - Borgalínu skal einfaldlega troðið upp á almenning, hvað sem það kostar. Enginn veit því endanlegan kostnað, allra síst forsvarsmenn borgarlínu og Betri Samgöngur ohf. Við borgarbúar vitum þó af biturri reynslu að kostnaðaráætlanir eiga það til að tvöfaldast og jafnvel fimmfaldast sbr. Brákarborg. Því væri óábyrgt að reikna með minna en 350 milljörðum í stofnkostnað Borgarlínunnar. Vera í lægri kantinum eins og sagt er - og rífandi bjartsýn. Þá er komið að vögnum og búnaði. Hér grípum við í tómt! Það er hreinlega engin áætlun til um kostnað vegna þessa liða. Ekki múkk, ekki eitt orð, ekki einn stafur! Eftir stutta skoðun greinarhöfunda er ljóst að þarna er um að ræða kostnað upp á tugi milljarða hið minnsta. Við skulum enn og aftur vera bjartsýn og áætla þennan kostnað upp á kr. 30 milljarða. Það undarlega er að ekkert þak er sett á þennan kostnað frekar en aðra liði þessa dæmalausa verkefnis - Borgalínu skal einfaldlega troðið upp á almenning, hvað sem það kostar. Þá er eftir grunn rekstrarkostnaður Borgarlínunnar. Talsmenn Borgarlínu nefndu á sínum tíma að rekrarkostnaður línunnar gæti farið í ríflega tvo milljarða á ári eða sex milljörðum minna en árlegur rekstarkostnaður Strætó var þá. Hér er val um að hlæja eða gráta, slík er vitleysan. Hvernig þessi útkoma er fengin veit enginn og sennilega síst talsmennirnir sjálfir. Við skulum þó vera rífandi bjartsýn og áætla 12 milljarða króna, sem er rekstarkostnaður Strætó í dag. Niðurstaðan er því, með rífandi bjartsýni og meðalhóf að leiðarljósi: •Stofnkostnaður línu : 350 milljarðar •Stofnkostnaður vagna: 30 milljarðar •Grunn rekstrarkostnaður: 12 milljarðar Til viðbótar kemur síðan fjármagnskostnaður sem nemur tugum milljarða á ári! Allar tölur eru vegna Borgarlínu einnar. Rekstrartölur Strætó standa sér og munu í besta falli haldast á svipuðu róli áfram eftir tilkomu Borgarlínu. Já, þú last rétt: Strætó mun áfram starfa samhliða Borgarlínu með sama kostnaði og áður. ,,Við erum með plan“ Þegar hér er komið sögu hlýtur að teljast eðlilegt að staldra við og spyrja einfaldrar spurningar: Hvernig eru áform um Borgarlínu til komin og með slíkum kostnaði að annað eins hefur ekki sést? Svarið liggur fyrir: Allt frá árinu 2012 hefur ríkið samkvæmt samningi greitt Strætó bs rétt um milljarð króna árlega. Samkvæmt samingnum átti þetta framlag að nýtast til að auka hlutdeild Strætó í ferðavenjum íbúa á höfuðborgarsvæðinu úr 4% í 12% á samningstímanum, sem upphaflega var 8 ár. Að átta árum liðnum lá niðurstaða verkefnisins fyrir: Engin breyting – Núll. Þrátt fyrir þetta var samningurinn framlengdur árið 2019. En hvernig skyldi staðan vera í dag? Nú, árið 2026 hefur ekkert breyst. Hlutfallið er enn 4%. Árangurinn er enn enginn, þ.e. 0 % aukning! Fórnarkostnaðurinn liggur hins vegar fyrir þar sem fallið var frá fyrirhuguðum nauðsynlegum úrbótum á samgöngumannvirkjum innan borgarmarkanna. Nú gjalda allir fyrir, líka farþegar Strætó. Sömu aðilar og mættu gallvaskir á fund ráðherra á sínum tíma, með ,,plan“ um að auka notkun strætó úr 4% í 12% og gengu út með milljarða, mættu á ný 2018 - Nú sem talsmenn borgarlínu. Með nýtt ,,plan.“ Hvernig það má vera að þeim hafi yfirhöfuð verið hleypt inn er undirrituðum hulin ráðgáta. Lausnin er einföld – Okkar Borg En nú skiptum við um gír og ræðum lausnir, enda mun skemmtilegra umræðuefni. Einfaldar lausnir eru alltaf bestar, þar sem þeim er viðkomið. Þannig er rétt að benda á staðreynd sem fæstum er kunnugt um. Þá staðreynd að heildartekjur Strætó af fargjaldasölu eru um 2 milljarðar króna á ári. Sem gerir um 5% prósent af bara vaxtakostnaði borgarlínu! Lausnin er einföld: Gerum Strætó gjaldfrjálsan og föllum frá öllum áformum um borgarlínu. •Þannig getum við látið reyna á til fulls hvort fleiri kjósi að nota þennan ferðamáta. •Þannig getum við sparað amk. 12 milljarða á ári vegna viðbótar rekstrarkostnaðar borgarlínu. •Þannig getum við sparað stofnkostnað borgarlínu upp á 350 milljarða. •Þannig getum við sparað 30 milljarða stofnkostnað vegna vagna og búnaðar. •Þannig getum við sparað fjármagnskostnað upp á tugi milljarða árlega. Í hundrað ár og gott betur. Byggjum upp samgöngumannvirki fyrir alla ferðamáta eins og til stóð allt til ársins 2010. Verjum þannig frelsi einstaklingsins til að velja þann ferðamáta sem hver og einn kýs og telur sjálfum sér fyrir bestu. Frelsi verður ekki metið til fjár - Það er ómetanlegt. Veljum frelsi – Veljum Okkar Borg! Höfundar skipa efstu þrjú sætin framboðslista Okkar Borg í komandi borgarstjórnarkosningum þann 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Okkar borg Borgarlína Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Ræður Ísland eitt við heilbrigðisverkefni framtíðarinnar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg stefna í alþjóðamálum Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Raunverulegt sjálfstæði Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar