Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar 24. ágúst 2026 08:40 „Væri mér mögulegt að lækka verðbólgu með því að sveifla hendi hefði ég gert það fyrir löngu síðan,“ voru lokaorð Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í Kastljósi á miðvikudag. Tilefnið var stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands og sú staðreynd að nýleg aukning verðbólgu hefur fyrst og fremst orsakast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Í Kastljósi firrti ráðherrann sig eigin ábyrgð og áhrifum hins opinbera á verðbólgu. Það gefur því tilefni til að rifja upp eina nýlega ákvörðun ráðherrans sem kom ekki til umræðu í Kastljósi og sýnir að stundum þarf ekki annað en að „sveifla hendinni“ til að hafa bein áhrif á verðbólgu. Þegar Daði sveiflaði hendinni Í janúar 2026 hækkaði verð á bifreiðum um 13,3% og lagði 0,56 prósentustig til mánaðarhækkunar vísitölu neysluverðs.Hækkunin átti sér stað samhliða breytingum stjórnvalda á vörugjöldum af bifreiðum. Viðbrögð Daða Más á Alþingi voru að áhrif breytinganna væru „nákvæmlega í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið spáði“. Sem skýringu á hækkuninni vísaði hann þó til álagningar á bifreiðar og sagði „slæmt þegar breytingar eru notaðar til að réttlæta hækkanir“. Myndin hér að neðan setur þetta í samhengi. Bifreiðaliðurinn hefur alla jafna lítil áhrif á verðbólgu, en stóru stökkin smellpassa við verulegar hækkanir á opinberri gjaldtöku. Áhrifin eru sundurliðuð samkvæmt fastskattsvísitölu Hagstofunnar, sem er matskennd greiningarvísitala. Hvað þýðir þetta? Án þessarar hækkunar bifreiðaliðarins í janúar væri tólf mánaða verðbólgan í dag tæpum 0,6 prósentustigum lægri. Jafnvel ef við tökum aðeins út áhrifin af hækkun vörugjalda væri hún nú um hálfu prósentustigi lægri. Ein „sveifla“ af hendi Daða gat því sannarlega haft mælanleg áhrif á verðbólgu. Það er munurinn á kjarasamningum í algeru uppnámi eða ekki. Samsvarandi hækkun á afborgunum húsnæðislána almennings eða ekki. Vítahringsáhrifum verðbólguvæntinga, verðhækkana og tapaðri tiltrú eða ekki. Vítahring sem hringsnýst enn. Við þetta má svo bæta gífurlegri hækkun hitaveitugjalda mánuði áður, í desember 2025, um 9,2%, sem skrifast á sveitarstjórnarstigið (einna helst þáverandi meirihluta í Reykjavík) og sömuleiðis hækkun áfengis- og tóbaksgjalds um 3,7% sömu áramótin, sem skrifast kirfilega á Kristrúnu og Daða. Það er þetta sem aðilar á vinnumarkaði tala um þegar þeir benda á að hið opinbera, bæði ríki og sveitarfélög, hafi ekki efnt sín loforð í kjarasamningum um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum. Hækkanir sem voru allar pólitískar ákvarðanir. Var fagnað of snemma? „Já, planið er að virka. Það var plan og það er að virka. Fimm vaxtalækkanir á einu ári. Lægsta verðbólga frá árinu 2020.“ Þetta sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sigri hrósandi á Alþingi 15. desember síðastliðinn. Gæta mátti mikilla fagnaðarláta á stjórnarheimilinu þar sem ráðherrar og þingmenn gortuðu sig af árangrinum. Þá þegar voru aðvörunarbjöllurnar orðnar glóðheitar, þar sem hagfræðingar bankanna, Seðlabankans, ASÍ og sérfræðingar innan ráðuneytis Daða vöruðu við fyrirhuguðum gjaldskrárhækkunum og verðbólguáhrifum þeirra. Aðvaranir sem voru algerlega hunsaðar. Örskömmu síðar var svo þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við ESB flýtt og liggur sú ákvörðun nú framundan. Vandinn er heimatilbúinn Verðbólga síðustu ára hefur átt sér margar orsakir, en húsnæðisverð hefur verið burðarliður í henni. Alltof lítið var byggt í fjöldamörg ár, húsnæði varð að fjárfestingaspili og Airbnb og útleigubrask bættu enn í þrýstinginn, samhliða sprengju í ferðaþjónustu og fólksfjölgun. Og ekki má gleyma áhrifum vísitölutengingar leiguverðs og verðtryggingar. Þar vegur ábyrgð stjórnvalda þungt. Aðgerðaleysi hins opinbera í húsnæðismálum hefur gert illt langtum verra. Við þetta bætast algerlega valkvæðar opinberar gjaldskrárhækkanir sem Seðlabankinn, ásamt fjölmörgum öðrum, bendir á að hafi hellt olíu á eldinn í afar viðkvæmu ástandi efnahagsmála á Íslandi. Því þetta er alltaf spurning um pólitískar ákvarðanir og þær hverfa ekki þótt Ísland gangi inn í ESB og vilji taka upp evruna. Við fáum hana nefnilega ekki nema við tökum til í hagstjórninni sjálf. Pólitík í búningi greiningar Freistnivandi Daða Más og annarra evrusinna er mikill - að bölsóta krónunni. Sú var svo auðvitað frásögnin í gjaldmiðlaskýrslu sem ráðuneyti Daða gaf út í sumar. Í nýrri greinargerð, Seðlabankinn og AGS segja aðra sögu um krónu og evru en stjórnvöld, blasir við hversu illa sú mynd stenst samanburð við mat Seðlabankans og AGS á lykilatriðum eins og hlutverki krónunnar sem höggdeyfi við efnahagsáföll og sambærilegum stöðugleika á við aðra flotgengisgjaldmiðla. Í greiningu AGS eru kostir við evruna einnig taldir upp, en líka fórnarkostnaður, eins og sú nauðsynlega innri aðlögun sem á sér stað við efnahagsáföll í formi launarýrnunar, atvinnuleysis og niðurskurðar. Spurningin er þó hvar línan liggur á milli efnahagslegrar greiningar og pólitískrar orðræðu hjá fjármálaráðherra flokks sem hefur ESB og upptöku evrunnar að sínu meginstefnumáli, í kjölfar þess að gjaldskrárhækkanir yfirvalda veltu aukinni fjárhagsbyrði yfir á almenning með fyrirsjáanlegum verðbólguáhrifum, þvert gegn loforðum í kjarasamningum og vörpuðu fyrirsjáanlegum neista í púðurtunnuna, algerlega að óþörfu. Höfundur er formaður Sósíalistaflokks Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
„
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar