Raunverulegt sjálfstæði Sandra Sigurðardóttir skrifar 24. ágúst 2026 06:30 Íslenskt samfélag hefur um aldir verið mótað af fákeppni og stéttaskiptingu. Jarðir og auðlindir á höndum kirkjunnar, örfárra bænda og höfðingja. Alþýða fólks bjó við erfið kjör og mjög takmörkuð tækifæri til að bæta hag sinn og sinna. Gamla valdið í nýjum búningi Stórir sigrar hafa unnist. Sjálfstæðisbaráttan, verkalýðshreyfingin og uppbygging velferðarkerfisins færðu aukin tækifæri til almennings. En ef rýnt er í uppbyggingu íslensks samfélags má sjá að rauði þráðurinn hefur aldrei almennilega slitnað. Eignir, fjármunir, sjávarútvegsauðlindin og fjármálakerfið eru enn í höndum fámenns hóps. Hið efnahagslega vald yfir samfélaginu okkar hefur í raun færst úr höndum stórbænda fortíðarinnar yfir til fárra fjárfesta, útgerðarinnar og hagsmunagæslumanna. Óttinn við staðreyndir og gagnsæi Í þessu samhengi er lærdómsríkt að fylgjast með málflutningi þeirra sem berjast gegn ESB-viðræðum. Hvers vegna gætir svona mikils ótta við að ganga til viðræðna, ná fram samningi, fá staðreyndir á borðið og sjá hvaða tækifæri felast í honum? Með því að fara í gegnum ferlið, klára viðræður og fá aðildarsamning á borðið fær íslensk þjóð í tækifæri til að reyna á breytingar sem gætu opnað samfélagið enn frekar, aukið samkeppni, lækkað framfærslukostnað og bætt hag almennings. Hið efnahagslega vald óttast gagnsæið; þeir vilja ekki að þjóðin fái tækifæri til að skoða samninginn sjálf og taki upplýsta ákvörðun. Ala á ótta og óvissu til að tryggja að óbreytt ástand ríki áfram hér á landi. Hvað er raunverulegt sjálfstæði? Sumir halda því fram að verið sé að fórna sjálfstæði þjóðarinnar. En raunverulegt sjálfstæði snýst ekki um að verja hagsmuni fárra útvalinna. Raunverulegt sjálfstæði snýst um að þjóðin fái að vita, velja og hafna á eigin forsendum út frá hagsmunum heildarinnar. Með því að kjósa JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst tryggjum við að ferlinu sé framhaldið, gengið verið að samningaborðinu og almenningur fengi lokaorðið. Það er kominn tími til að landsmenn allir ákveði hvað er best fyrir þjóðina og framtíðar kynslóðir. Sameinumst um það að velja upplýsingar og gagnsæi - segjum JÁ þann 29. ágúst. Höfundur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Sandra Sigurðardóttir Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Íslenskt samfélag hefur um aldir verið mótað af fákeppni og stéttaskiptingu. Jarðir og auðlindir á höndum kirkjunnar, örfárra bænda og höfðingja. Alþýða fólks bjó við erfið kjör og mjög takmörkuð tækifæri til að bæta hag sinn og sinna. Gamla valdið í nýjum búningi Stórir sigrar hafa unnist. Sjálfstæðisbaráttan, verkalýðshreyfingin og uppbygging velferðarkerfisins færðu aukin tækifæri til almennings. En ef rýnt er í uppbyggingu íslensks samfélags má sjá að rauði þráðurinn hefur aldrei almennilega slitnað. Eignir, fjármunir, sjávarútvegsauðlindin og fjármálakerfið eru enn í höndum fámenns hóps. Hið efnahagslega vald yfir samfélaginu okkar hefur í raun færst úr höndum stórbænda fortíðarinnar yfir til fárra fjárfesta, útgerðarinnar og hagsmunagæslumanna. Óttinn við staðreyndir og gagnsæi Í þessu samhengi er lærdómsríkt að fylgjast með málflutningi þeirra sem berjast gegn ESB-viðræðum. Hvers vegna gætir svona mikils ótta við að ganga til viðræðna, ná fram samningi, fá staðreyndir á borðið og sjá hvaða tækifæri felast í honum? Með því að fara í gegnum ferlið, klára viðræður og fá aðildarsamning á borðið fær íslensk þjóð í tækifæri til að reyna á breytingar sem gætu opnað samfélagið enn frekar, aukið samkeppni, lækkað framfærslukostnað og bætt hag almennings. Hið efnahagslega vald óttast gagnsæið; þeir vilja ekki að þjóðin fái tækifæri til að skoða samninginn sjálf og taki upplýsta ákvörðun. Ala á ótta og óvissu til að tryggja að óbreytt ástand ríki áfram hér á landi. Hvað er raunverulegt sjálfstæði? Sumir halda því fram að verið sé að fórna sjálfstæði þjóðarinnar. En raunverulegt sjálfstæði snýst ekki um að verja hagsmuni fárra útvalinna. Raunverulegt sjálfstæði snýst um að þjóðin fái að vita, velja og hafna á eigin forsendum út frá hagsmunum heildarinnar. Með því að kjósa JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst tryggjum við að ferlinu sé framhaldið, gengið verið að samningaborðinu og almenningur fengi lokaorðið. Það er kominn tími til að landsmenn allir ákveði hvað er best fyrir þjóðina og framtíðar kynslóðir. Sameinumst um það að velja upplýsingar og gagnsæi - segjum JÁ þann 29. ágúst. Höfundur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi.
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar