Íslenskum ríkisborgurum fjölgaði fimmtán sinnum meira en erlendum Kjartan Kjartansson skrifar 12. janúar 2026 10:53 Byggingarverkamenn að störfum. Erlendum ríkisborgurum fjölgaði lítillega á milli mánaða en þeim hefur þó fjölgað nokkuð meira en íslenskum síðasta rúma árið. Stærsti hluti þeirra kemur frá Póllandi og Litáen. Vísir/Vilhelm Erlendum ríkisborgurum fjölgaði um ellefu á landinu á milli mánaða en íslenskum um 165, fimmtán sinnum meira. Síðasta rúma árið hefur erlendum ríkisborgurum þó fjölgað rúmlega helmingi meira en íslenskum.
Tæplega 84 þúsund erlendir ríkisborgarar voru búsettir á Íslandi 1. janúar samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár. Þeim fjölgaði um ellefu frá 1. desember. Mest fjölgaði rúmenskum ríkisborgurum, um 26. Þar á eftir komu ríkisborgarar frá Venesúela og Filippseyjum. Erlendir ríkisborgarar eru rétt rúmur fimmtungur þeirra sem hafa búsetu á landinu sem er svo gott sem sama hlutfall og 1. desember árið 2024. Stærsti hlutinn er Pólverjar sem voru 6,5 prósent búsettra á landinu í byrjun þessa árs. Næstfjölmennasti hópurinn var Litáar, 1,5 prósent. Íslenskum ríkisborgurum fjölgaði um 2.121 frá loka árs 2024 þar til í byrjun þessa árs sem var fjölgun um 0,6 prósent. Á sama tíma fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 3.404 eða rúm fjögur prósent. Það er rúmlega sextíu prósent meiri fjölgun en á meðal íslenskra ríkisborgara á sama tíma.
Innflytjendamál Mannfjöldi Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira