Sjálfstæðismenn stefna á leiðtogaprófkjör í borginni Árni Sæberg skrifar 24. október 2025 13:13 Albert Guðmundsson er formaður Varðar. Stjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun leggja tillögu um leiðtogaprófkjör fyrir ráðið. Samkvæmt tillögunni myndi ráðið svo greiða atkvæði um sæti tvö til sjö á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Þetta staðfestir Albert Guðmundsson, formaður Varðar, í samtali við Vísi. Fullyrt var í hlaðvarpinu Komið gott á dögunum að búið væri að ákveða að leiðtogaprófkjör yrði haldið til þess að velja oddvita Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í vor. Raðað yrði í næstu fjögur sæti. Albert segir það ekki alveg rétt. Samþykkt hafi verið á fundi stjórnar Varðar á dögunum að leggja tillögu fyrir fulltrúaráðið þess efnis að leiðtogaprófkjör fari fram og ráðið raði í sæti til og með sjöunda. Það yrði gert með því að ráðið greiði atkvæði um einn frambjóðanda í einu. Uppstillingarnefnd myndi sjá um rest. Tillaga stjórnarinnar afrakstur nokkurra mánaða vinnu „Við vorum með hópa sem unnu yfir sumarið að því að skoða alla valmöguleika sem stóðu okkur til boða. Við höfum rætt þetta nokkuð vel og þessi blandaða aðferð kom organískt upp á stjórnarfundi. Hún mældist nokkuð vel fyrir og var samþykkt með miklum meirihluta. Hún er að okkar mati til þess fallin að tikka í sem flest box, að ná sem flestum af þeim markmiðum sem hafa brunnið á almennum Sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Það er að velja sterkan leiðtoga og ná síðan saman samhentum lista.“ Þannig gætu frambjóðendur metið það eftir leiðtogaprófkjörið hvort þeir hafi enn áhuga á því að bjóða fram krafta sína á lista sem leiddur er af leiðtoganum. Þá myndi leiðin gefa fulltrúaráðinu kost á að setja sig í hlutverk uppstillingarnefndar. Það hafi einnig verið rætt að nota uppstillingarnefnd til þess að stilla listanum upp að öllu leyti fyrir utan fyrsta sætið. Þúsund manna fundur í nóvember Albert segir að hann yrði ekki hissa ef aðrar tillögur koma fram á fundi fulltrúaráðs, sem stefnt er á að halda í nóvember. Hann eigi von á tillögu um uppstillingarnefnd og segir að venjan hafi lengi verið að halda almennt prófkjör. Tveir þriðju fundarmanna muni þurfa að samþykkja tillögu um aðra leið en almennt prófkjör og því kæmi það honum ekki á óvart ef það yrði lendingin. „Hugsunin var að einfalda annars mjög erfitt verk uppstillingarnefndar, það er að segja ef það er krafa um nýliðun á listanum, þá væri mjög erfitt að gera það í nefnd sem er lokuð inni. Þetta væri auðvitað langt um lýðræðislegri leið en samt til þess fallin að ná þessum markmiðum sem við viljum fá út úr þessu ferli.“ Fulltrúaráðið telji ríflega eitt þúsund manns og stefnt sé að því að halda fund ráðsins í nóvember. Þá verði Reykjavíkurþing, eins konar landsfundur fyrir borgina, haldið í aðdraganda kosninga.
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira